![Red cross on white background](/media/z5vhf1bw/placeholder.jpg?crop=0,0.00099443969204448656,0,0.0045658682634730748&cropmode=percentage&width=420&height=279&rnd=132842080095300000)
Áfallamiðstöð opin á Egilsstöðum í dag
Almennar fréttir 27. ágúst 2021Rauði krossinn hefur verið að störfum á Egilsstöðum í kjölfar vopnaðra lögregluaðgerða gærkvöldi. Hlutverk Rauða krossins snýr einkum að sálrænum stuðningi og fræðslu. Áfallamiðstöð verður opin í Egilsstaðaskóla í dag á milli klukkan 16 og 18 þar sem Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning.
![Red cross on white background](/media/z5vhf1bw/placeholder.jpg?crop=0,0.00099443969204448656,0,0.0045658682634730748&cropmode=percentage&width=420&height=279&rnd=132842080095300000)
Fataverkefni Rauða krossins vinnur þrekvirki á tímum heimsfaraldurs
Almennar fréttir 26. ágúst 2021Fatasöfnun Rauða krossins hefur glímt við margvíslegar áskoranir allt frá upphafi heimsfaraldursins Covid 19 en starfseminni hefur verið haldið gangandi allt frá upphafi heimsfaraldursins. Nú er þó svo komið að Rauði krossinn vill biðla til allra landsmanna að leggja sitt af mörkum og taka þátt í þessu mikilvæga samfélagsverkefni með okkur.
![Red cross on white background](/media/z5vhf1bw/placeholder.jpg?crop=0,0.00099443969204448656,0,0.0045658682634730748&cropmode=percentage&width=420&height=279&rnd=132842080095300000)
Rauði krossinn fagnar viðbrögðum stjórnvalda en bendir áfram á sára neyð í Afganistan
Almennar fréttir 25. ágúst 2021Rauði krossinn fagnar afgerandi viðbrögðum íslenskra stjórnvalda og þeirri ákvörðun að taka á móti allt að 120 flóttamönnum frá Afganistan. Þau sem eftir verða í heimalandi sínu eru þó ekki síður í brýnni þörf fyrir mannúðaraðstoð og horfir Rauði krossinn því til þess hóps í von um að tryggja heilbrigðisþjónustu, COVID-forvarnir, aðgengi að hreinu vatni og fæðuöryggi.
![Red cross on white background](/media/z5vhf1bw/placeholder.jpg?crop=0,0.00099443969204448656,0,0.0045658682634730748&cropmode=percentage&width=420&height=279&rnd=132842080095300000)
Eitt prósent landsmanna styðji við neyðarsöfnun fyrir Afganistan
Almennar fréttir 23. ágúst 2021Þann 17 ágúst síðast liðinn hóf Rauði krossinn á Íslandi neyðarsöfnun fyrir íbúa Afganistans. Hátt í 800 manns hafa nú þegar stutt íbúa í Afganistan með rausnarlegum framlögum en við vonumst til þess að fleiri vilji bætast í þennan hóp og leggja söfnuninni lið og styðja þannig við mannúðaraðgerðir í Afganistan. Markmið Rauða krossins er að eitt prósent landsmanna (18 ára og eldri) styðji við íbúa Afganistans í þessari neyðarsöfnun. Við skorum því á alla, bæði almenning og fyrirtæki að taka þátt í þessu mikilvæga verkefni með okkur.
![Red cross on white background](/media/z5vhf1bw/placeholder.jpg?crop=0,0.00099443969204448656,0,0.0045658682634730748&cropmode=percentage&width=420&height=279&rnd=132842080095300000)
Neyðarsöfnun fyrir íbúa Afganistans
Almennar fréttir 17. ágúst 2021Alþjóðaráð Rauða krossins (ICRC) hefur sent frá sér ákall vegna ástandsins í Afganistan, sem veldur miklum þjáningum fyrir borgara í landinu.
![Red cross on white background](/media/z5vhf1bw/placeholder.jpg?crop=0,0.00099443969204448656,0,0.0045658682634730748&cropmode=percentage&width=420&height=279&rnd=132842080095300000)
Sjálfboðaliðar Rauða krossins aðstoða við smitrakningu almannavarna
Almennar fréttir 11. ágúst 2021Í kjölfar fjölgunar smita í samfélaginu hefur álag á smitrakningarteymi almannavarna aukist til muna. Almannavarnir leituðu því til Rauða krossins og hafa sjálfboðaliðar úr viðbragðshópum félagsins að undanförnu lagt hönd á plóg við að veita upplýsingar og stuðning til einstaklinga sem verið hafa útsettir fyrir smiti.
![Red cross on white background](/media/z5vhf1bw/placeholder.jpg?crop=0,0.00099443969204448656,0,0.0045658682634730748&cropmode=percentage&width=420&height=279&rnd=132842080095300000)
Rauði krossinn fjölgar farsóttarhúsum vegna álags
Almennar fréttir 26. júlí 2021Það er í nægu að snúast hjá Rauða krossinum þessa dagana. Sóttkvíarhótelum hefur verið fjölgað úr einu í tvö og farsóttarhúsum úr einu í þrjú en á þessari stundu veita sjálfboðaliðar og starfsfólk Rauða krossins aðstoð og stuðning til um 200 einstaklinga í sóttkví og 130 einstaklinga í einangrun.
![Red cross on white background](/media/z5vhf1bw/placeholder.jpg?crop=0,0.00099443969204448656,0,0.0045658682634730748&cropmode=percentage&width=420&height=279&rnd=132842080095300000)
Vilt þú verða sendifulltrúi Rauða krossins?
Almennar fréttir 05. júlí 2021Rauði krossinn á Íslandi auglýsir eftir umsóknum á sendifulltrúanámskeið félagsins, IMPACT (International Mobilization and Preparation for Action) sem er forsenda þess að fá starf á vegum félagsins á alþjóðavettvangi.
![Red cross on white background](/media/z5vhf1bw/placeholder.jpg?crop=0,0.00099443969204448656,0,0.0045658682634730748&cropmode=percentage&width=420&height=279&rnd=132842080095300000)
Reykjavíkurborg tekur við rekstri Vinjar
Almennar fréttir 02. júlí 2021Lyklaskipti urðu í gær þegar velferðarsvið Reykjavíkurborgar tók við rekstri dagsetursins Vin við Hverfisgötu. Vin er dagsetur fyrir fólk með geðraskanir sem Rauði krossinn á höfuðborgarsvæðinu hefur rekið í nær 29 ár.
![Red cross on white background](/media/z5vhf1bw/placeholder.jpg?crop=0,0.00099443969204448656,0,0.0045658682634730748&cropmode=percentage&width=420&height=279&rnd=132842080095300000)
Rauði krossinn opnaði fjöldahjálparstöð á Akureyri
Almennar fréttir 01. júlí 2021Samhæfingarstöð almannavarna var virkjuð og viðbragðshópur Rauða krossins á Norðurlandi kallaður út á þriðja tímanum í dag í kjölfar hópslyss á Akureyri. Þar hafði hoppukastali tekist á loft en fjöldi fólks var í kastalanum þegar atvikið átti sér stað.
![Red cross on white background](/media/z5vhf1bw/placeholder.jpg?crop=0,0.00099443969204448656,0,0.0045658682634730748&cropmode=percentage&width=420&height=279&rnd=132842080095300000)
Söfnuðu dósum og styrktu Rauða krossinn
Almennar fréttir 28. júní 2021Þær Alicia Julia Kempisty og Arndís Edda Gottskálksdóttir söfnuðu dósum á Akureyri og gáfu Rauða krossinum við Eyjafjörð.
![Red cross on white background](/media/z5vhf1bw/placeholder.jpg?crop=0,0.00099443969204448656,0,0.0045658682634730748&cropmode=percentage&width=420&height=279&rnd=132842080095300000)
Rauði krossinn stendur fyrir leiðbeinendanámskeiði í skyndihjálp
Almennar fréttir 21. júní 2021Leiðbeinendanámskeið í skyndihjálp verður haldið dagana 25.-30. september 2021. Námskeiðið nær yfir sex heila daga og verður haldið á höfuðborgarsvæðinu.
![Red cross on white background](/media/z5vhf1bw/placeholder.jpg?crop=0,0.00099443969204448656,0,0.0045658682634730748&cropmode=percentage&width=420&height=279&rnd=132842080095300000)
Alþjóðadagur flóttafólks 2021: Saman sigrumst við á áskorunum
Almennar fréttir 20. júní 2021Venjulegt fólk þarf að finna leiðir til að bjarga lífi sínu og sinna, komast í skjól, öryggi, komast á stað þar það getur treyst yfirvöldum og samfélaginu í kringum sig. \r\n
![Red cross on white background](/media/z5vhf1bw/placeholder.jpg?crop=0,0.00099443969204448656,0,0.0045658682634730748&cropmode=percentage&width=420&height=279&rnd=132842080095300000)
Alþjóðadagur SÞ gegn kynferðisofbeldi í stríðsátökum
Almennar fréttir 19. júní 2021Magnea Marinósdóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur og sérfræðingur á sviði jafnréttismála, skrifar um kynferðisofbeldi í stríðsátökum.
![Red cross on white background](/media/z5vhf1bw/placeholder.jpg?crop=0,0.00099443969204448656,0,0.0045658682634730748&cropmode=percentage&width=420&height=279&rnd=132842080095300000)
Ársskýrsla Rauða krossins 2020
Almennar fréttir 09. júní 2021Ársskýrsla Rauða krossins á Íslandi fyrir árið 2020 er komin út. Venju samkvæmt samanstendur skýrslan meðal annars af yfirliti yfir störf Rauða krossins á innlendum og erlendum vettvangi, lykiltölum frá rekstri félagsins og myndasyrpu.
![Red cross on white background](/media/z5vhf1bw/placeholder.jpg?crop=0,0.00099443969204448656,0,0.0045658682634730748&cropmode=percentage&width=420&height=279&rnd=132842080095300000)
Seldu myndir og styrktu Rauða krossinn
Almennar fréttir 07. júní 2021Vinkonurnar Bríet Svala Sölvadóttir og Brynhildur Ylfa Þóroddsdóttir teiknuðu myndir og seldu nágrönnum sínum. Þannig söfnuðu þær 3.783 krónum sem þær gáfu til Rauða krossins á Íslandi.
![Red cross on white background](/media/z5vhf1bw/placeholder.jpg?crop=0,0.00099443969204448656,0,0.0045658682634730748&cropmode=percentage&width=420&height=279&rnd=132842080095300000)
Heimir og Styrkár styrkja Rauða krossinn
Almennar fréttir 07. júní 2021Vinirnir Heimir Halldórsson og Styrkár Bjarni Vignisson seldu heimabakaða pizzusnúða og smoothie fyrir utan Melabúðina. Með því móti söfnuðu þeir 4.290 krónum sem þeir gáfu til Rauða krossins.
![Red cross on white background](/media/z5vhf1bw/placeholder.jpg?crop=0,0.00099443969204448656,0,0.0045658682634730748&cropmode=percentage&width=420&height=279&rnd=132842080095300000)
Hleypur Laugaveginn til styrktar Frú Ragnheiði
Almennar fréttir 04. júní 2021Hörður Jónsson, sjálfboðaliði Frú Ragnheiðar tekur þátt í Laugavegshlapinu sem er haldið 18. júlí næstkomandi. Hann hleypur til styrktar Frú Ragnheiðar og hóf söfnun nýverið.