Héldu tombólu á Akureyri
Almennar fréttir 23. nóvember 20216 vinkonur héldu tombólu hjá Kjörbúðinni við Borgarbraut á Akureyri og gáfu Rauða krossinum við Eyjafjörð afraksturinn, 7.100 krónur.
Endurtekið efni um endursendingar á börnum til Grikklands
Almennar fréttir 22. nóvember 2021Í upphafi árs hófu íslensk stjórnvöld að synja barnafjölskyldum á flótta um efnislega meðferð umsókn sinna en ákvarða þess í stað að endursenda þær til Grikklands, þrátt fyrir að hafa metið aðstæður þar óviðunandi aðeins nokkrum mánuðum áður. Rauði krossinn, Barnaheill og UNICEF á Íslandi telja að hagsmunir barna séu ekki metnir á heildstæðan hátt og að ákvarðanir um endursendingar til Grikklands skapi börnum hættu sem íslensk stjórnvöld beri ábyrgð á.
3 vinkonur héldu tombólu í Langadal
Almennar fréttir 22. nóvember 2021Vinkonurnar Hjördís Lóa Óttarsdóttir, Katrín Borg Jakobsdóttir og Mist Sigurbjörnsdóttir héldu tombólu í árlegri fjölskyldu útilegu í Þórsmörk í byrjun október til styrktar Rauða krossinum.
160 gestir í farsóttarhúsunum
Almennar fréttir 22. nóvember 2021Um 10% af þeim 1.800 sem eru með virkt kórónuveirusmit eru í einangrun í farsóttarhúsum. Á farsóttarhúsunum dvelja nú um 160 gestir, þarf af eru 150 í einangrun og 10-15 einstaklingar í sóttkví sem hafa verið að fylgja börnunum sínum í einangrun. Um þriðjungur gestanna eru börn, alveg frá nokkra mánaða upp í 15 ára gömul.
Starfsmenn Marel söfnuðu 37.7 milljónum fyrir Rauða krossinn með átakinu “Move the Globe”
Almennar fréttir, Alþjóðastarf 17. nóvember 2021Í byrjun september sl. hófst átakið “Move the Globe” hjá 6.800 starfsmönnum Marel í 30 löndum. Markmiðið var að safna áheitum fyrir alþjóðaverkefni Rauða krossins með hreyfingu og líkamsrækt. Alls safnaðist 250.000 evrur, eða 37.7 milljónir íslenskra króna. Þann 4. nóvember sl. heimsótti sendiherra Brasilíu gagnvart Íslandi, Enio Cordeiro, höfuðstöðvar Marel á Íslandi og við það tækifæri tók Kristín S. Hjálmtýsdóttir framkvæmdastjóri Rauða krossins á Íslandi formlega á móti söfnunarágóðanum fyrir hönd alþjóða Rauða krossins.
Rauði krossinn styður við verkefni alþjóða Rauða krossins við Miðjarðarhaf
Alþjóðastarf, Alþjóðastarf 15. nóvember 2021Rauði krossinn á Íslandi hefur ákveðið að styðja mannúðar- og lífsbjargandi verkefni alþjóða Rauða krossins fyrir flóttamenn á landi og sjó við Miðjarðarhaf með fjárframlagi og mannafla. Ocean Viking bjargaði alls 314 konum, körlum og börnum í yfirstandandi leiðangri og er nú í höfn í Augusta á Sikiley. Þar komst fólkið loks í land í dag, sumir eftir tíu daga um borð í skipinu.
Rauði krossinn opnar ný farsóttarhús
Almennar fréttir 12. nóvember 2021Rauði krossinn opnar ný farsóttarhús. Rauði krossinn minnir á að mikilvægasta vörnin í útbreiðslu smita er að fylgja leiðbeiningum heilbrigðisyfirvalda varðandi sóttvarnir. Hjálparsíminn 1717 og netspjallið 1717.is er alltaf opið. Sýnum góðvild á krefjandi tímum og verum til staðar fyrir hvert annað.
3 vinkonur héldu tombólu í Norðlingaholti
Almennar fréttir 31. október 2021Vinkonurnar Matthildur Mínerva Bjarkadóttir, Rún Ingvarsdóttir og Vigdís Hrefna Magnúsdóttir máluðu myndir og seldu Við Olís í Norðlingaholti og söfnuðu með því fé til styrktar Rauða Krossinum
Röskva og Urður héldu tombólu
Almennar fréttir 31. október 2021Systurnar Röskva og Urður Arnaldardætur héldu tombólu og söfnuðu 10.376 kr. sem þær gáfu Rauða krossinum. Við þökkum þeim kærlega fyrir þeirra famlag!
Héldu tombólu í Spönginni
Almennar fréttir 27. október 2021Vinkonurnar Sóley Yabing Kristinsdóttir, Hanna Elísabet Hákonardóttir, Elísa Builien Andradóttir, Sara Björk Eiríksdóttir, Hrafnhildur Elva Elvarsdóttir og Eva Lovísa Heimisdóttir söfnuðu pening til styrktar Rauða krossinum
Rauði krossinn tók þátt í flugslysaæfingu
Almennar fréttir 26. október 2021Viðbragðshópar Rauða krossins á Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu tóku þátt í umfangsmikilli flugslysaæfingu laugardaginn 23. október á Keflavíkurflugvelli. Rauði krossinn opnaði söfnunarsvæði fyrir aðstandendur bæði í Reykjanesbæ og Reykjavík auk þess að koma til aðstoðar á söfnunarsvæði slasaðra á flugvellinum og við stjórnun og samhæfingu aðgerðanna í Samhæfingarstöð almannavarna í Reykjavík og aðgerðastjórn almannavarna á Suðurnesjum.
Rauði krossinn undirritar samning um hjálparlið almannavarna
Almennar fréttir 25. október 2021Ríkislögreglustjóri, formaður Rauða krossins á Íslandi og formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar skrifuðu undir endurnýjað „Samkomulag um hjálparlið almannavarna“, sem síðast var endurnýjað árið 2012.
Hjálpin er komin út!
Almennar fréttir 23. október 2021Fréttablaði Rauða krossins fylgir með Fréttablaðinu í dag
Uppboð á notuðum sjúkrabílum hafið
Almennar fréttir 22. október 2021Á næstu dögum og vikum verða boðnir út notaðir sjúkrabílar, sem lokið hafa hlutverki sínu. Uppboðin fara fram á bílauppboðsvefnum Bílauppboð.is - Uppboðsvefur (bilauppbod.is).
Origo og Rauði krossinn\r\nbæta tæknilega innviði og hjálparstarf í Afríku
Almennar fréttir, Alþjóðastarf 21. október 2021Rauði krossinn á Íslandi hefur frá árinu 2013 staðið fyrir metnaðarfullu verkefni sem miðar að því að byggja getu afrískra landsfélaga Rauða kross hreyfingarinnar í upplýsinga- og samskiptatækni. Origo er nýjasti samstarfsaðili Rauða krossins í verkefninu.
Röð út á götu á risa kíló fatamarkaði Rauða krossins
Almennar fréttir 21. október 2021Síðasta laugardag 16 október sl. var haldinn risa kíló fatamarkaður hjá Rauða krossins. Síðasta laugardag 16 október sl. var haldinn risa kíló fatamarkaður hjá Rauða krossins.
Árlegur basar Rauða krossins í Árnessýslu á laugardaginn
Almennar fréttir 21. október 2021Árlegur basar handavinnuhóps Rauða krossins í Árnessýslu verðu haldinn 23. október frá 10 til 14 að Eyrarvegi 23 á Selfossi.
Skiljum engan eftir, út undan eða í hættu
Almennar fréttir 20. október 2021Rauði krossinn á Íslandi og Rauða kross hreyfingin á heimsvísu hefur um áratugaskeið brugðist við neyð víða um heim og stutt við samfélög er þau vinna að því að ná heimsmarkmiðunum.