46 ár liðin frá Vestmannaeyjagosinu
Almennar fréttir 23. janúar 2019Gosið árið 1973 markar upphaf neyðarvarnarstarfs Rauða krossins á Íslandi.
Rauði krossinn á Framadögum
Innanlandsstarf 23. janúar 2019Rauði krossinn kynnir sjálfboðaliðastörf Rauða krossins á framadögum háskólanna á morgun, fimmtudaginn 24. janúar.
Yndislegir gleðigjafar útskrifast af hundavinanámskeiði
Innanlandsstarf 22. janúar 2019Í síðustu viku útskrifuðust fjórir sjálfboðaliðar og fimm heimsóknahundar af hundavinanámskeiði Rauða krossins í Kópavogi. Það að auki var einn reyndur hundur endurmetin fyrir áframhaldandi störf.
Rauði krossinn í Kópavogi býður nú upp á verklega skyndihjálp
Innanlandsstarf 18. janúar 2019Rauði krossinn í Kópavogi býður nú upp á nýja gerð af skyndihjálparnámskeiði sem hentar vel fólki sem hefur áhuga á að læra skyndihjálp en er mjög upptekið á kvöldin. Á þessu námskeiði er fyrri hluti námskeiðisins (bóklegi hlutinn) tekin á netinu, hvenær sem hentar.
Mikið að gera í fataverkefni Rauða krossins
Innanlandsstarf 17. janúar 2019Landsmenn eru duglegir að skila fötum í fatagáma Rauða krossins eftir jólahátíðina. Rauði krossinn vinnur hörðum höndum að því að vinna úr öllu því magni sem fólk hefur gefið til góðargerðarmála.
Fyrir alla sem vilja þjálfa sig í íslensku
Innanlandsstarf 10. janúar 2019Verkefnið Æfingin skapar meistarann, íslenskuþjálfun fyrir fólk af erlendum uppruna hefur störf á nýju ári laugardaginn 12. janúar kl. 10-12 í húsnæði Mímis.
Héldu tombólu í Mjóddinni
Almennar fréttir 09. janúar 2019Söfnuðu samtals 8.734 kr.
Þreif til styrktar Rauða krossinum
Almennar fréttir 08. janúar 2019Gekk á milli húsa og bauðst til að þrífa til styrktar Rauða krossinum
Rauði krossinn og Sýn í samstarf
Almennar fréttir 07. janúar 2019Sýn og Rauði krossinn á Íslandi hafa gert með sér samstarfssamning sem í felst stuðningur Sýnar við alþjóðlegt hjálparstarf Rauða krossins, nánar tiltekið verkefnið Brúun hins stafræna bils. Það aðstoðar landsfélög Rauða krossins og Rauða hálfmánans í fimmtán Afríkuríkjum að bæta þekkingu og búnað í upplýsinga- og samskiptatækni svo þau megi efla getu sína í hjálparstarfi.
Sendifulltrúar við störf í Bangladess
Almennar fréttir 04. janúar 2019Í október á síðasta ári fóru Ingibjörg Ösp Ingólfsdóttir og Kolbrún Þorsteinsdóttir, hjúkrunarfræðingar, í sínar fyrstu starfsferðir sem sendifulltrúar fyrir Rauða krossinn. Þær fóru til Cox Bazar í Bangladess þar sem þær störfuðu fram að jólum en alls hafa 26 sendifulltrúar á vegum Rauða krossins starfað við neyðartjaldsjúkrahús í kjölfar fólkflutnings yfir 900.000 Róhingja frá Mjanmar til Bangladess.
Rauði krossinn í Kópavogi hefur störf á ný eftir jólafrí
Innanlandsstarf 02. janúar 2019Rauði krossinn í Kópavogi hefur störf á ný eftir jólafrí og ríkir mikil tilhlökkun fyrir komandi verkefni.\r\nHér má lesa um helstu verkefni Rauða krossins í Kópavogi.
Neyðarsöfnun Rauða krossins\r\nfyrir Jemen skilar 47 milljónum króna - jafngildir matarbirgðum fyrir 49 þúsund börn í mánuð
Almennar fréttir 27. desember 2018Í dag lauk neyðarsöfnun Rauða krossins á Íslandi vegna neyðarástands í Jemen. Söfnunin sem hófst í byrjun nóvember gekk framar vonum og nemur framlag Rauða krossins alls um 47 milljónum króna sem fer til lífsbjargandi hjálparstarfs í Jemen.
Styrkur til jólaaðstoðar Rauða krossins
Almennar fréttir 21. desember 2018Samiðn, Byggiðn og FIT styrktu jólaaðstoð Rauða krossins í vikunni
Landsvirkjun og Arion styrkja jólaaðstoð Rauða krossins
Almennar fréttir 21. desember 2018Í vikunni bárust Áfallasjóði Rauða krossins rausnarleg framlög frá Landsvirkjun og Arion banka.
Neyðarsöfnun vegna hungursneyðar í Jemen framlengd til 27. desember
Almennar fréttir 21. desember 2018Fjölmörg sms og innlagnir hafa borist undanfarna daga og eru nú vonir bundnar við að söfnunin muni ná að safna mat fyrir 20 þúsund börn í einn mánuð.
50 ára afmæli Rauða hálfmánans í Palestínu aflýst vegna átaka
Almennar fréttir 21. desember 2018Þann 13. desember sl. fagnaði Rauði hálfmáninn í Palestínu 50 ára afmæli sínu í skugga hernáms og átaka á herteknu svæðunum í Palestínu. Fulltrúar Rauða krossins á Íslandi voru í Palestínu í tilefni afmælisins ásamt fleiri fulltrúum úr alþjóðahreyfingu Rauða krossins og Rauða hálfmánans.
Góði hirðirinn styrkir Áfallasjóð Rauða krossins
Almennar fréttir 20. desember 2018Í dag veitti Góði hirðirinn Áfallasjóði Rauða krossins eina milljón króna við hátíðlega athöfn í starfsstöð Góða hirðisins.
Frábært framlag til Malaví
Almennar fréttir 20. desember 2018Málaði ójólalegar myndir á jólakort til styrktar Rauða krossinum