Birting frétta
Ártal

Guðbjörg Sveinsdóttir sæmd Florence Nightingale-orðunni

Almennar fréttir 25. ágúst 2023

Geðhjúkrunarfræðingurinn Guðbjörg Sveinsdóttir hefur verið sæmd Florence Nightingale-heiðursorðunni, sem er æðsti alþjóðlegi heiður sem hjúkrunarfræðingi getur hlotnast. Guðbjörgu var veitt orðan við formlega athöfn á skrifstofu Rauða krossins í dag.

Heimsóknavinir í 10 ár

Almennar fréttir 25. ágúst 2023

Þann 19. ágúst 2013 fór Gígja í sína fyrstu heimsókn til Svövu Sigurðardóttur (96) og hafa þær hist reglulega síðan. Í upphafi voru þetta heimsóknir einu sinni í viku í klukkutíma í senn en í dag hefur heimsóknarmynstrið breyst. Þær hittast ennþá einu sinni í viku en heimsóknin varir ekki í eina klukkustund heldur mun lengur. Í dag eru þær meira vinkonur en gestgjafi og sjálfboðaliði.

Söfnuðu dósum til styrktar Rauða krossinum

Almennar fréttir 23. ágúst 2023

Þær Eygló Yrsa, Karen Rut, Rebekka Rán og Andrea söfnuðu dósum í Grafarvoginum og afhentu Rauða krossinum afraksturinn sem var um 50.000 krónur.

Söfnuðu flöskum og styrktu Rauða krossinn

Almennar fréttir 22. ágúst 2023

Þessar vinkonur söfnuðu flöskum til að styrkja Rauða krossinn á Íslandi.

Félagasamtök lýsa þungum áhyggjum af stöðunni í málefnum fólks á flótta

Almennar fréttir 21. ágúst 2023

Eftirfarandi fréttatilkynning var send út á föstudag.

Plantaði trjám og hugmyndum í Síerra Leóne

Alþjóðastarf 08. ágúst 2023

Karl Benediktsson lauk nýlega sendifulltrúaför til Síerra Leóne, þar sem hann vann að trjáræktarverkefni á vegum alþjóðasambands Rauða krossins. Hann segir mikilvægt að ráðast í aðgerðir vegna loftslagsbreytinga og að verkefnið hafa veitt honum dýrmæta reynslu.

Alþjóðlegur forvarnardagur drukknunar 2023

Almennar fréttir 25. júlí 2023

Í dag 25. júlí 2023 er Alþjóðlegi forvarnardagur drukknunar. Rauði krossinn vill vekja athygli á mikilvægi almennings í forvörnum og skyndihjálp. Er það hluti af því að hvetja til bættra viðbragða og efla aðgerðir til að hindra dauðsföll að völdum drukknunar.

Söfnuðu dósum til styrktar Rauða krossinum

Almennar fréttir 24. júlí 2023

Þessar duglegu stúlkur gengu í hús í Hafnarfirði og söfnuðu 22.000 kr. sem þær afhentu Rauða krossinum á dögunum.

Gaman og gefandi að vera vinur á vegum Rauða krossins

Almennar fréttir 21. júlí 2023

Eva Rós Gústavsdóttir hefur verið sjálfboðaliði í vinaverkefnum Rauða krossins frá því í byrjun árs, en hún er bæði göngu- og heimsóknarvinur. Eva er í sálfræðinámi og eftir að hafa lært um hversu slæm áhrif félagsleg einangrun hefur á fólk ákvað hún að gerast sjálfboðaliði.

Terra Einingar styrkir Rauða krossinn á Íslandi

Almennar fréttir 20. júlí 2023

Terra Einingar og Rauði krossinn á Íslandi munu á næstu dögum skrifa undir samstarfssamning er felur í sér styrk í formi húsnæðis undir starfssemi Ylju. Í verkefnið verða notaðar húseiningar frá Terra Einingum sem reistar verða fyrir Rauða krossinn undir samfélagsverkefni Rauða krossins sem ber nafnið Ylja.

Héldu vöfflu- og kökubasar til styrktar Rauða krossinum

Almennar fréttir 17. júlí 2023

Þeir Vilhjálmur og Emil héldu vöfflu og kökubasar til styrktar Rauða krossinum og seldu fyrir rúmlega 20.000 kr.

Söfnuðu dósum til styrktar Rauða krossinum

Almennar fréttir 07. júlí 2023

Bjarndís Olga Hansen og Ólafur Elías Ottósson söfnuðu dósum fyrir 23.000 krónur til styrktar alþjóðaverkefnum Rauða krossins.

Kynnist fólki og menningu alls staðar að

Alþjóðastarf 05. júlí 2023

Kolbrún Þorsteinsdóttir kom nýlega heim frá Suður-Súdan, þar sem hún var sendifulltrúi fyrir Rauða krossinn á Íslandi. Þetta er hennar þriðja ferð sem sendifulltrúi og hún segir að það sem standi upp úr eftir slíkar ferðir sé alltaf fólkið sem hún fær að kynnast.

Söfnuðu fyrir Rauða krossinn

Almennar fréttir 30. júní 2023

4 vinkonur héldu tombólu, söfnuðu flöskum og seldu popp til styrktar Rauða krossinum.

Starfsmenn Rauða krossins kenndu í Vísindaskólanum

Innanlandsstarf 29. júní 2023

Tveir starfsmenn Rauða krossins við Eyjafjörð tóku þátt í kennslunni hjá Vísindaskóla unga fólksins í Háskólanum á Akureyri fyrr í mánuðinum, en hann er ætlaður ungmennum á aldrinum 11-13 ára.

Seldu myndir til styrktar Rauða krossinum

Almennar fréttir 28. júní 2023

Tvær vinkonur gengu í hús og seldu myndir fyrir Rauða krossinn.

Seldu kaffi og kökur til styrktar Rauða krossinum

Almennar fréttir 26. júní 2023

Nokkrar vinkonur stóðu fyrir söfnun til að styrkja Rauða krossinn í síðustu viku.

Gylfi Þór tekur við sem teymisstjóri fjáröflunar- og kynningarsviðs

Almennar fréttir 21. júní 2023

Gylfi Þór Þorsteinsson hefur tekið tímabundið við sem teymisstjóri fjáröflunar- og kynningarsviðs Rauða krossins á Íslandi, en hann var nýlega ráðinn sem teymisstjóri Mannvina hjá félaginu.