Birting frétta
Ártal

Terra Einingar styrkir Rauða krossinn á Íslandi

Almennar fréttir 20. júlí 2023

Terra Einingar og Rauði krossinn á Íslandi munu á næstu dögum skrifa undir samstarfssamning er felur í sér styrk í formi húsnæðis undir starfssemi Ylju. Í verkefnið verða notaðar húseiningar frá Terra Einingum sem reistar verða fyrir Rauða krossinn undir samfélagsverkefni Rauða krossins sem ber nafnið Ylja.

Héldu vöfflu- og kökubasar til styrktar Rauða krossinum

Almennar fréttir 17. júlí 2023

Þeir Vilhjálmur og Emil héldu vöfflu og kökubasar til styrktar Rauða krossinum og seldu fyrir rúmlega 20.000 kr.

Söfnuðu dósum til styrktar Rauða krossinum

Almennar fréttir 07. júlí 2023

Bjarndís Olga Hansen og Ólafur Elías Ottósson söfnuðu dósum fyrir 23.000 krónur til styrktar alþjóðaverkefnum Rauða krossins.

Söfnuðu fyrir Rauða krossinn

Almennar fréttir 30. júní 2023

4 vinkonur héldu tombólu, söfnuðu flöskum og seldu popp til styrktar Rauða krossinum.

Seldu myndir til styrktar Rauða krossinum

Almennar fréttir 28. júní 2023

Tvær vinkonur gengu í hús og seldu myndir fyrir Rauða krossinn.

Seldu kaffi og kökur til styrktar Rauða krossinum

Almennar fréttir 26. júní 2023

Nokkrar vinkonur stóðu fyrir söfnun til að styrkja Rauða krossinn í síðustu viku.

Gylfi Þór tekur við sem teymisstjóri fjáröflunar- og kynningarsviðs

Almennar fréttir 21. júní 2023

Gylfi Þór Þorsteinsson hefur tekið tímabundið við sem teymisstjóri fjáröflunar- og kynningarsviðs Rauða krossins á Íslandi, en hann var nýlega ráðinn sem teymisstjóri Mannvina hjá félaginu.

Alþjóðadagur flóttafólks er í dag

Almennar fréttir 20. júní 2023

20. júní er alþjóðadagur flóttafólks hjá Sameinuðu þjóðunum. Fjöldi fólks á flótta á heimsvísu er nú í sögulegum hæðum og flóttafólk og aðrir farendur mæta vaxandi fordómum og jaðarsetningu víða um heim. En Alþjóðasamband Rauða krossins og Rauða hálfmánans sinnir öflugu og víðtæku starfi til að vernda líf og auka vernd og reisn þessa fólks.

100 milljónir til að efla stuðning við flóttafólk

Almennar fréttir 15. júní 2023

Rauði krossinn á Íslandi fékk fyrr á þessu ári um 100 milljón króna styrk frá Evrópusambandinu til að mæta aukinni þörf fyrir sálfélagslegan stuðning við flóttafólk.

Sendifulltrúanámskeið Rauða krossins

Almennar fréttir 08. júní 2023

Rauði krossinn á Íslandi auglýsir eftir umsóknum á sendifulltrúanámskeið félagsins sem haldið verður dagana 8. - 13. október.

Seldu dót til að styrkja Rauða krossinn

Almennar fréttir 01. júní 2023

Vinkonurnar Elín Sjöfn Vignis og Mattea Líf Kristinsdóttir söfnuðu fyrir Rauða krossinn og afhentu okkur afraksturinn í þarsíðustu viku.

Stjórnarfundur hjá Alþjóðasambandi Rauða krossins

Almennar fréttir 17. maí 2023

Stjórnarfundur Alþjóðasambands Rauða krossins og Rauða hálfmánans var haldinn í seinustu viku. Þar áttum við Íslendingar okkar fulltrúa, en Ragna Árnadóttir er hluti af stjórninni og verður það til ársins 2026.

Héldu tombólu fyrir Rauða krossinn

Almennar fréttir 15. maí 2023

Þrír vinir héldu tombólu til styrktar Rauða krossinum í síðustu viku.

Alþjóðadagur Rauða krossins er í dag!

Almennar fréttir 08. maí 2023

Í dag heldur Rauða krossinn upp á alþjóðadag hreyfingarinnar, en 8. maí er fæðingardagur stofnandans, Henry Dunant.

Forsetinn heimsótti Rauða krossinn

Almennar fréttir 25. apríl 2023

Rétt fyrir páska fór forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, í heimsókn í Rauða krossinn á Suðurnesjum.

Héldu tombólu til að styrkja neyðarsöfnun

Almennar fréttir 19. apríl 2023

Vinkonurnar Una og Stella héldu tombólu til að styrkja neyðarsöfnun Rauða krossins fyrir skömmu.

Afstaða Rauða krossins á Íslandi og Endurlífgunarráðs Íslands gagnvart sogtæki til að losa aðskotahlut í öndunarvegi

Almennar fréttir 04. apríl 2023

Rauði krossinn og Endurlífgunarráð mæla ekki með notkun á sogtæki við að reyna að losa aðskotahlut í öndunarvegi.

Margir hafa týnt ástvinum vegna átaka í Úkraínu

Almennar fréttir 27. mars 2023

Fjölskyldusameiningar er eitt mikilvægasta verkefni Rauða krossins og fyrir ári setti hreyfingin upp sérstaka skrifstofu til að sinna þeim þúsundum fjölskyldna sem hafa týnt ástvinum vegna vopnaðra átaka í Úkraínu.