Slys og veikindi barna: Ungbörn
Námskeiðið Slys og veikindi: Ungbörn er ætlað öllum þeim sem vilja læra eða rifja upp grunnatriði skyndihjálpar með áherslu á ungbörn.
Námskeiðið er hugsað fyrir verðandi eða nýbakaða foreldra, dagforeldra auk annarra sem sinna ungbörnum ( 0-18 mánaða).
Þátttakendur munu fá tækifæri til að öðlast þekkingu, hæfni og öryggi til að veita skyndihjálp við algengum slysum og veikindum ungbarna og eins verður fjallað um helstu orsakir slysa ungbarna og slysaforvarnir.
Þátttakendur sem sitja námskeiðið fá útgefið eftirfarandi skírteini: Slys og veikindi: Ungbörn og er það gilt í tvö ár frá útgáfudegi. Rauði krossinn mælir með endurmenntun annað hvert ár.
Námskeiðið uppfyllir 21. grein reglugerðar um starfsréttindi dagforeldra nr. 907 (2005) fyrir skyndihjálp, slysavarnir og öryggi barna.
Frekari upplýsingar
Staðarnámskeið Rauða krossins: 13.200 kr.
Athugið að stéttarfélög bjóða félagsfólki upp á starfsmenntunarstyrki og fyrirtæki sem greiða iðgjald í starfsmenntunarsjóði/setur geta sótt um fræðslustyrki fyrir starfsfólk sitt.
15-20 þátttakendur
Einn leiðbeinandi
Farið er eftir viðurkenndum gæðaviðmiðum Rauða krossins í hámarksfjölda þátttakenda á leiðbeinanda.
Hlutverk og ábyrgð leiðbeinenda gagnvart þátttakendum er að tryggja öryggi, velferð og líðan þeirra á meðan á námskeiðinu stendur yfir.
- Rauði krossinn og útbreiðsla skyndihjálpar
- Skyndihjálparkeðjan
- Öryggi í umönnun barna og slysaforvarnir
- Grunnverkfæri skyndihjálpar
- Kynning á sálrænni fyrstu hjálp
- Endurlífgun ungbarna og notkun hjartastuðtækis
- Aðskotahlutur í hálsi ungbarna
- Algeng veikindi ungbarna og viðbrögð
- Bráð veikindi ungbarna
- Slys og áverkar - algeng slys og áverkar ungbarna
Til þess að fá útgefið skírteini í Slys og veikindi: Ungbörn þurfa þátttakendur að sitja allt námskeiðið og sýna fram á virka þátttöku í öllum þáttum námskeiðsins.
Kennsluaðferðir námskeiðs eru fyrirlestrar, umræður og spurningar, sýnikennsla, verklegar æfingar og tilfellaæfingar.
Við lok námskeiðs eiga þátttakendur að hafa öðlast þekkingu, hæfni og öryggi í að veita ungum börnum skyndihjálp, en það felst í því að þátttakendur:
- Sýni fram á þekkingu og hæfni við að tryggja öryggi á vettvangi, meta aðstæður og framkvæma skoðun og mat.
- Geta ákveðið hvenær eigi að virkja viðbragðskeðjuna, með því að hringja í 112, til að fá frekari aðstoð.
- Sýni fram á þekkingu og hæfni við að tryggja öryggi ungra barna í leik og í slysaforvörnum.
- Geti borið kennsl á og veitt sálræna fyrstu hjálp vegna áfalla.
- Sýni fram á þekkingu, leikni og hæfni í endurlífgun ungra barna, með hjartahnoði, öndunarblástrum og notkun á hjartastuðtæki.
- Sýni fram á leikni og hæfni í teymisvinnu í endurlífgun ungra barna.
- Geti borið kennsl á og veitt viðeigandi skyndihjálp vegna aðskotahlutar í hálsi ungra barna.
- Geti borið kennsl á og veitt viðeigandi skyndihjálp vegna bráðra veikinda ungra barna.
- Geti borið kennsl á og veitt viðeigandi skyndihjálp vegna slysa og áverka ungra barna.