Viðnámsþróttur Íslendinga við náttúruhamförum
3 dagar
Hvert og eitt heimili þarf að geta verið sjálfu sér nægt í 3 daga ef hamfarir og neyðarástand dynur yfir.
Er heimilisáætlun og viðlagakassi á þínu heimili?
Þjóðin fær reglulega að kynnast áhrifum eldgosa, jarðskjálfta, ofanflóða, jökulhlaupa og óveðra. Rauði krossinn á Íslandi er mikilvægur hluti af kerfi almannavarna á Íslandi og felst hlutverk félagsins meðal annars í opnun og starfsrækslu fjöldahjálparstöðva, söfnunarsvæða aðstandenda og skráningarstöðva, úrvinnslu skráninga, sálfélagslegum stuðningi og aðkomu að rekstri þjónustumiðstöðva almannavarna.
Algengar spurningar og svör
Ef það slokknar á öllu, net- og símasamband dettur út og/eða vegir verða ófærir er mikilvægt að hvert heimili geti verið sjálfu sér nægt í a.m.k. 3 daga.
Góður undirbúningur minnkar álag á viðbragðsaðilum eins og björgunarsveitum.
Að vera vel undirbúin getur jafnvel bjargað mannslífum. Öll heimili ættu að vera með heimilisáætlun og viðlagakassa tilbúinn.
Já við þurfum öll að huga að þessu. Náttúruhamfarir og slæmt veður getur dunið á hvar sem er á Íslandi og með litlum fyrirvara.
Viðlagakassi ætti að vera til staðar á hverju heimili, þ.e. kassi sem inniheldur þá hluti sem íbúar gætu þurft á að halda í kjölfar hamfara. Við vitum aldrei hvenær við gætum þurft að grípa til hans þegar náttúran gerir vart við sig svo best er að útbúa slíkan kassa strax í dag ef hann er ekki nú þegar til staðar. Athugið að geyma kassann þar sem öll fjölskyldan getur nálgast hann og gættu þess að hlutirnir í honum séu ekki útrunnir.
Hér að neðan er gátlisti yfir hluti sem mikilvægt er að hafa innan seilingar - annað hvort í viðlagakassanum eða á aðgengilegum stað.
Viðlagakassinn
Munið að margt er til á heimilum nú þegar og því er þetta oftar en ekki spurning um að taka þá til, setja í kassa og hafa á aðgengilegum stað.
-
Listi yfir mikilvæg símanúmer - Fjölskyldumeðlimir og viðbragðsaðilar, s.s. 112.
-
Kerti og eldspýtur - Ef rafmagn þrýtur er nauðsynlegt að geta tendrað ljós og kveikt upp í eldunargræjum.
-
Sterkt viðgerðarlímaband - Mjög gagnlegt í minni viðgerðir og skammtímareddingar.
-
Hreinlætisvörur - Tannbursta, bleyjur, sápu, dömubindi/túrtappa, svitalyktareyði o.s.frv.
-
Lyf, fatnað, snyrtivörur og nauðsynleg hjálpartæki, t.d. gleraugu og heyrnartæki.
-
Vasaljós með rafhlöðum
-
Reiðufé
-
Leikföng og spil - Nauðsynlegt fyrir börn jafnt sem fullorðna og fyrirtaks dægrastytting.
-
Vatn á flöskum eða brúsa - Hver einstaklingur notar allt að fjóra lítra á dag.
-
Teppi til að kúra saman í kuldanum - Muna að hafa nóg fyrir alla á heimilinu.
-
Matur með langt geymsluþol (dósamatur, pakkamatur, þurrmeti) - Svo er bara að borða hann í útilegum á sumrin og fylla aftur á með haustinu.
-
Vasahnífur eða fjölnota verkfæri - Nauðsynlegt í minniháttar viðgerðir og reddingar.
Annað sem er mikilvægt að hafa í huga:
-
Skyndihjálpartaska er alltaf nauðsynleg á hvert heimili.
-
Verðmætir pappírar sem erfitt getur verið að fá endurútgefna, hlutir með tilfinningalegt gildi, vottorð, vegabréf o.fl..
-
Huga að lyfjum og öðru sem fólk getur ekki verið án
-
Það getur borgað sig að vera með auka gleraugu á vísum stað.
-
Prímus og gaskút er nauðsynlegt að eiga - það er leiðinlegra að borða dósamatinn kaldan. Þá virkar gasgrill líka.
-
Slökkvitæki
-
Hleðslubanki og hleðslutæki
-
Hafðu nóg eldsneyti á bílnum/passaðu að hann sé hlaðinn ef hættuástand skapast og þú átt bíl - þannig geturðu hlaðið síma og fylgst með fréttum í útvarpinu ef samband er til staðar.
-
Kynntu þér staðsetningu næstu fjöldahjálparstöðvar. HÉR má finna staðsetningar á landinu.
Mikilvægt er að heimilisáætlun sé til staðar þar sem náttúruhamfarir og veðrabrigði gerast oft án viðvörunar. Til að sporna við skaða á bæði híbýlum og fólki þarf fyrirfram undirbúin viðbrögð.
Í hvers kyns hamförum hafa flestir mestar áhyggjur af sínum nánustu og því er heimilisáætlun nauðsynleg. Samkvæmt Almannavörnum felst heimilisáætlun í fjórum megin skrefum:
- Hættumat - Hvað gæti gerst?
- Forvarnir - Hvernig er hægt að minnka líkur á slysum og tjóni í kjölfar hættuástands?
- Viðbragðsáætlun - Hvernig eigum við að bregðast við?
- Huga að gæludýrum - Eigum við búr til að flytja gæludýr og allt sem þarf fyrir þau?
- Æfingar-upprifjun-endurskoðun - Hvað og hvernig eigum við að æfa okkur?
Á vef Almannavarna má finna mjög greinagóða lýsingu á hvernig setja eigi upp heimilisáætlun og hvetur Rauði krossinn alla til að kynna sér hana til hlítar.
Þegar íbúum á tilgreindum reitum (svæðum) hefur borist tilkynning um rýmingu ber þeim að fara í öruggt húsnæði fyrir skilgreinda tímasetningu. Tryggja þarf að öll þau sem í húsinu búa eða vinna fái vitneskju um að rýma skuli húsnæðið. Heimilisfólk þarf að ákveða hver eða hverjir það eru sem tryggja það.
Gott er að hafa hugað að því hvað nauðsynlegt sé að taka með sér þegar rýma þarf. Til að mynda er ágætt að miða við að hafa fatnað og nauðsynjar til nokkurra daga, ásamt því að taka með sér eigur sem erfitt er að bæta.
Taka með:
• Lyf, fatnað, snyrtivörur og nauðsynleg hjálpartæki, t.d. gleraugu og heyrnartæki.
• Hleðslutæki og/eða hleðslubanka fyrir farsíma.
• Nauðsynjar fyrir ungbörn ef þau eru á heimilinu.
• Mat og búr fyrir gæludýr ef þau eru tekin með.
Ekki gleyma að:
• Ganga tryggilega frá helstu verðmætum eða hafa þau meðferðis. Helstu verðmæti eru til að mynda verðmætir pappírar sem erfitt getur verið að fá endurútgefna, hlutir með tilfinningalegt gildi, vottorð, vegabréf o.fl.
• Loka öllum gluggum og hurðum.
• Tryggja að matvæli liggi ekki undir skemmdum á meðan rýmingu stendur.
• Ganga úr skugga um að hiti sé á húsinu.
• Gott er að skilja eftir ljós í forstofu og við útidyr.
• Setja rýmingarskiltið út í glugga þegar heimili hefur verið rýmt þannig að það sjáist sem best frá götu.
Að þessu loknu skal halda til fjöldahjálparstöðvarinnar til móttöku-/skráningarfólks eða hringja í 1717 og halda til þess dvalarstaðar sem ákveðinn hefur verið. Fólk er hvatt til þess að fylgjast vel með tilkynningum í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum.