Umsækjendur um alþjóðlega vernd
Rauði krossinn veitir umsækjendum um alþjóðlega vernd þjónustu í formi félagslegs stuðnings ásamt félagsstarfs. Félagslegur stuðningur felst í að draga úr félagslegri einangrun, auka virkni fólks og ýta undir þátttöku þess í íslensku samfélagi á meðan það bíður eftir úrlausn sinna mála.
Félagslegur stuðningur
Rauði krossinn býður upp á viðtalstíma fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd vikulega. Tilgangur tímanna er að skapa vettvang fyrir umræður um mál sem liggja umsækjendum á hjarta, hvort sem þau snúa að félagslegum þáttum, andlegri líðan eða tengslum við fjölskyldu í upprunaríki. Í viðtalstímum er boðið upp á túlkaþjónustu í gegnum síma svo allir geta tjáð sig óhindrað. Þjónustan er veitt á forsendum umsækjenda og hefur verið sem næst búsetuúrræðum fólks með auðvelt aðgengi að leiðarljósi.
Viðtalstímar
Viðtalstímar fara fram á eftirfarandi tímum:
Reykjavík
Einstaklingar geta komið alla mánudaga til fimmtudaga frá kl. 09:00 -11:00.
Staðsetning: Domus, Egilsgata 3
Keflavík
Mánudaga og þriðjudaga kl. 9 - 11, Grænásbraut 619, Ásbrú.
Sími: 570 4000
Netfang: asylum@redcross.is
Félagsstarf
Félagsstarf umsækjenda um alþjóðlega vernd býður skjólstæðingum og sjálfboðaliðum vettvang til að skipuleggja viðburði og verkefni með valdeflingu og virka þátttöku að leiðarljósi. Markmiðið með félagslegum stuðningi við umsækjendur um alþjóðlega vernd er að þjónusta skjólstæðinga og bjóða þeim upp á félagsleg úrræði, virkni og tengingu við nærsamfélagið, en ekki síður að vekja almenning til vitundar og hvetja til þátttöku.
Starfið er fjölbreytt og fjölmargir hópar hittast í viku hverri, þar með talið kvennahópur og ungmennahópur, en einnig er haldið opið hús. Auk þess er bæði íslenska og enska kennd. Félagsstarfið fer fram í Árskógum, á Vitatorgi og Smiðjuvöllum Reykjanesbæ. Dagskráin breytist reglulega en hana má finna í gegnum þennan hlekk:
Viltu styðja umsækjendur um alþjóðlega vernd?
Við leitum að sjálfboðaliðum 20 ára og eldri sem tala íslensku eða ensku og vilja taka þátt í félagsstarfi með umsækjendum um alþjóðlega vernd.