Innanlandsverkefni Rauða krossins
Verkefni
Við vinnum að fjölbreyttum verkefnum innanlands sem utan. Verkefnavalið er metið eftir því hvar þörfin er mest hverju sinni.
Flóttafólk og innflytjendur
Umsækjendur um alþjóðlega vernd
Rauði krossinn sinnir félagslegum stuðningi við umsækjendur um alþjóðlega vernd.
Flóttafólk og innflytjendur
Rauði krossinn á Íslandi hefur starfað með flóttafólki frá árinu 1956. Síðan þá hefur félagið gegnt lykilhlutverki í félagslegum stuðningi og hagsmunagæslu flóttafólks.
Leitarþjónusta og fjölskyldusameiningar
Félagið er hluti af leitarþjónustu alheimshreyfingar Rauða krossins og Rauða hálfmánans. Unnið er í samstarfi með ICRC á átakasvæðum.
Fataverkefni og endurnýting
Fataverslanir
Hér sérðu opnunartíma verslana Rauða krossins um allt land. Með því að gefa textíl til Rauða krossins styður almenningur við mikilvæg mannúðarverkefni og stuðlar að umhverfisvernd í formi endurnýtingar.
Fatasöfnun
Fatasöfnun Rauða krossins er bæði frábær endurvinnsla auk þess að fólk leggur félaginu lið með því að gefa fatnað og styrkir þannig neyðaraðstoð bæði hér á landi og erlendis.
Fataverkefnið á samfélagsmiðlum
Rauðakrossbúðirnar eru á Facebook og Instagram, auk þess að hafa gefið út tvö tölublöð af tízkutímaritinu Endurnýtt líf. Vertu með!
Heilbrigði og velferð
Aðstoð eftir afplánun
Aðstoð eftir afplánun er verkefni ætlað fólki sem hefur nýlokið fangelsisvist. Það er mikilvægt að fá stuðning þegar afplánun lýkur en mörgum getur reynst erfitt að hefja nýtt líf.
Hjálparsíminn 1717 og netspjallið
Ekkert vandamál er of lítið eða stórt fyrir netspjall og hjálparsímann 1717. Þjónustan er alltaf opin og ókeypis, trúnaði og nafnleynd er heitið.
Sálræn fyrsta hjálp
Sálfélagslegur stuðningur er sérhæfð þjónusta við fólk sem lendir í áföllum og byggir á viðurkenndum viðbrögðum við bráðum áfallastreituviðbrögðum.
Skaðaminnkun
Rauði krossinn starfrækir verkefni sem byggja á hugmyndafræði skaðaminnkunar í vinnu með einstaklingum sem eiga við vímuefnavanda að stríða
Skyndihjálp
Rauði krossinn býður upp á vönduð og hagnýt námskeið í skyndihjálp, sem sniðin eru að þörfum hópa, s.s. almennings, fagaðila og starfsmanna fyrirtækja.
Vinaverkefni
Vinaverkefnin miða að því að draga úr félagslegri einangrun og auka við félagslega þátttöku fólks. Hlutverk sjálfboðaliða er fyrst og fremst að veita félagsskap, nærveru og hlýju.
Hamfarir og neyðaraðstoð
Neyðarvarnir
Fjöldahjálparstöðvar eru starfræktar á neyðartímum til að bjóða þolendum náttúruhamfara og annarra alvarlegra atburða öruggt skjól. Þar er þeim séð fyrir helstu grunnþörfum.
Sjúkrabílar
Rauði krossinn er eigandi sjúkrabílaflotans og annast innkaup þeirra auk þess að reka bifreiðarnar og tækjabúnað til sjúkraflutninga. Í dag eru bifreiðarnar 84 talsins