Siðareglur Rauða krossins á Íslandi
Sjálfboðaliðar og starfsfólk Rauða krossins á að
- virða grundvallarmarkmið Alþjóðahreyfingar Rauða krossins og Rauða hálfmánans ásamt leiðarljósi Rauða krossins á Íslandi og vinna hvoru tveggja brautargengi,
- koma fram af heiðarleika og virðingu gagnvart þeim sem starfað er fyrir eða með óháð þjóðerni, uppruna, kyni, aldri, trúarbrögðum, stjórnmálaskoðunum eða þjóðfélagsstöðu,
- gæta fyllsta trúnaðar um það sem þeir fá vitneskju um í starfi sínu og ber að fara með sem trúnaðarmál,
- ekki sýna áreitni eða misbeita valdi, hvorki kynferðislega né á annan hátt í samskiptum við einstaklinga sem þeir starfa fyrir eða með,
- gæta þess, við öflun fjármuna, að hafa sjálfstæði félagsins í heiðri,
- einungis nota fjármuni og eigur Rauða krossins í þágu hans og þeirra verkefna sem samræmast stefnu félagsins og skuldbinda hann ekki umfram samþykktir,
- forðast að taka að sér verkefni sem ganga gegn markmiðum félagsins,
- gæta þess að koma ekki fram fyrir hönd Rauða krossins í samskiptum við félög, fyrirtæki og stofnanir sem þeir eru í forsvari fyrir, sérstaklega þegar um viðskiptalega hagsmuni gæti verið að ræða,
- ekki taka þátt í ráðstöfun fjármuna eða eigna félagsins til verkefna þar sem þeir eða einstaklingar nánir þeim eiga hagsmuna að gæta.
Ásamt siðareglum ber sjálfboðaliðum og starfsfólki að fylgja fagviðmiðum um gæði og ábyrgð í mannúðarstarfi.