Lög Rauða krossins á Íslandi
Núgildandi lög voru samþykkt á aðalfundi félagsins 4. maí 2024. Rauði krossinn á Íslandi er sjálfstætt og óháð félag sjálfboðaliða sem stendur vörð um mannréttindi og virðingu einstaklinga og vinnur að verkefnum sem snúa að félagslegu öryggi og neyðarvörnum vegna áfalla og hamfara.
Rauði krossinn á Íslandi er sjálfstætt félag gagnvart stjórnvöldum sem gerir því kleift að starfa í samræmi við grunngildi alþjóðahreyfingar Rauða krossins og Rauða hálfmánans. Meginhlutverk Rauða krossins á Íslandi er að standa vörð um og aðstoða þá sem verst eru staddir í samfélaginu og bregðast við hvers konar neyð, hvort heldur er af náttúru- eða mannavöldum. Rauði krossinn á Íslandi vinnur að því að kynna og breiða út þekkingu á og virðingu fyrir Rauða krossinum, mannúðarlögum og þjóðréttarreglum um verndun þolenda vopnaðra átaka.
Rauði krossinn gegnir stoðhlutverki gagnvart stjórnvöldum í mannúðarmálum og fylgir eftir að stjórnvöld uppfylli skyldur sínar og tryggi réttindi samkvæmt Genfarsamningunum frá 12. ágúst 1949 og viðbótarbókunum við þá frá 8. júní 1977 og 8. desember 2005. Lögin má kynna sér á hlekknum hér að neðan.