Slys og veikindi ungbarna: yngri en 1 árs - Víkurhvarf

Námskeið

07 maí
Staðsetning Víkurhvarf 1, 203 Kópavogur
Tími 17:00 - 20:00
Leiðbeinandi Guðjón Einar Guðmundsson
Verð á mann 13.200 ISK

Á námskeiðinu er lögð áhersla á grunnatriði almennrar skyndihjálpar, svo sem skoðun og mat á ástandi og endurlífgun. Farið er í viðbrögð við algengum slysum og alvarlegum veikindum og hvernig best er að styðja við ungbörnin í slíkum tilfellum.

Skráning
course-image
Námskeið fyrir verðandi foreldra, nýbakaða foreldra og forráðamenn ungabarna, auk annarra sem sinna börnum undir 1 árs. Þátttakendur þurfa að vera 14 ára eða eldri.

Á námskeiðinu er lögð áhersla á grunnatriði almennrar skyndihjálpar, svo sem skoðun og mat á ástandi og endurlífgun. Farið er í viðbrögð við algengum slysum og alvarlegum veikindum og hvernig best er að styðja við börnin í slíkum tilfellum. Námskeiðið gagnast öllum þeim sem umgangast ungabörn, hvort sem er í starfi eða daglegu lífi.

Athugið að forsenda fyrir námskeiðinu er að þátttaka sé næg. Þátttakendur þurfa að vera skráð áður en námskeiðið hefst og ekki er tekið við skráningum á staðnum. Ef námskeiðið er fullt er ekki hægt að bæta við fleiri þátttakendum.

Ekki er boðið upp á veitingar svo fólk er hvatt til að taka með sér nesti.

Þátttökugjald er ekki endurgreitt ef styttra en þrír dagar eru í námskeið og læknisvottorð liggur ekki fyrir. Eftir að námskeiðið er hafið er þátttökugjaldið ekki endurgreitt.

Allar frekari upplýsingar í síma 570-4000 og á namskeid@redcross.is.