Staðsetning
Microsoft Teams, 103 Reykjavík
Tími
17:30 - 20:00
Leiðbeinandi
Jakob Smári Magnússon
Námskeiðið er kynning á neyðarvörnum Rauða krossins og helstu verkefnum innan þeirra, þar á meðal opnun fjöldahjálpastöðva, hlutverk Rauða krossins í almannavörnum og fleira.
Námskeiðið ,,Inngangur að neyðarvörnum" verður haldið þriðjudaginn 12. nóvember í gegnum fjarfundarforritið Microsoft Teams. Námskeiðið er opið öllum sjálfboðaliðum Rauða krossins. Námskeiðið hefst klukkan 17:30 og lýkur klukkan 20:30. Þátttakendur þurfa að hafa aðgang að vefmyndavél og míkrafón. Ókeypis er á námskeiðið.
Helstu efnistök:
-Kynning á neyðarvörnum Rauða krossins og helstu verkefnum
-Opnun fjöldahjálparstöðvar
-Samantekt og umræður
Fyrir frekari upplýsingar hafið samband við Jakob Smára Magnússon, netfang: jakobs@redcross.is