Staðsetning
Efstaleiti 9, 103 Reykjavík
Tími
17:30 - 19:30
Leiðbeinandi
Guðrún Svava Viðarsdóttir
Verð á mann
0 ISK
Miðvikudaginn 28. ágúst verður haldið námskeið fyrir nýliða í verkefnum félagslegrar þátttöku hjá Rauða krossinum.
Tími: 17:30-19:30
Hlutverk sjálfboðaliða er að rjúfa félagslega einangrun með því að veita félagsskap, hlustun, nærveru og hlýju. Í námskeiðinu verður farið nánar yfir verkefnin og fræðst um ýmislegt þeim tengdum, s.s. félagslega einangrun og góð samskiptaform.
Nýliðanámskeiðið verður haldið í húsnæði Rauða krossins í Efstaleiti kl. 17:30, þann 28. ágúst nk. og mun standa yfir í um tvær klukkustundir.