Nýliðanámskeið félagslegrar þátttöku (vinaverkefni)

Námskeið

27 feb.
Staðsetning Víkurhvarf 1, 203 Kópavogur
Tími 17:30 - 19:30
Leiðbeinandi Alda Björk Harðardóttir

Fimmtudaginn 27. febrúar verður haldið námskeið fyrir nýja sjálfboðaliða í félagslegum verkefnum Rauða krossins - vinaverkefnum. Námskeiðið fer fram í Víkurhvarfi 1, 203 Kópavogi og fer það fram á íslensku. Tími: 17:30 - 19:30

Skráning
course-image
Hlutverk sjálfboðaliða er að rjúfa félagslega einangrun með því að veita félagsskap, hlustun, nærveru og hlýju. Í námskeiðinu verður farið nánar yfir verkefnin og fræðst um ýmislegt þeim tengdum, s.s. félagslega einangrun og góð samskiptaform.

Nýliðanámskeiðið verður haldið í húsnæði Rauða krossins í Víkurhvarfi 1, 203 Kópavogi og mun standa yfir í um tvær klukkustundir.