Grunnhundamat

Námskeið

10 sep.
Staðsetning Efstaleiti 9, 103 Reykjavík
Tími 18:00 - 21:00
Leiðbeinandi Þórdís Björg Björgvinsdóttir

Grunnhundamat fyrir sjálfboðaliða hundavina verður haldið þriðjudaginn 10. september frá kl. 18:00-21:00 í húsnæði Rauða krossins í Efstaleiti 9, 103 Reykjavík

Námskeið er fullt

course-image
Fyrir sjálfboðaliðastarf hundavina er mikilvægt að hafa eins góðan undirbúning og hægt er. Til að byrja með þarf að mæta í grunnhundamat, sem er framkvæmt af reyndum sjálfboðaliðum í verkefninu. Þau meta hvort eigandi og hundur séu fær um að taka þátt. Vert er að taka fram að hundavinaverkefnið hentar ekki öllum hundum og ber að hafa í huga að það standast ekki öll matið. Sum fá síðan endurgjöf og þurfa að vinna í ákveðnum þáttum áður en þau geta setið hundanámskeiðið. Allt er þetta gert með hagsmuni gestgjafa og sjálfboðaliða að leiðarljósi.

Athugið að hundar þurfa að vera orðnir 2 ára gamlir. Gert er ráð fyrir 15 mín fyrir hvert mat.
 
Eftirfarandi tímar eru í boði: 18:00 -18:15 -18:30 - 18:45 - 19:00 - 19:15 - 19:30 - 19:45 - 20:00 - 20:15 - 20:30 -20:45 
Vinsamlegast sendið tölvupóst á vinaverkefni@redcross.is og tilgreinið þann tíma sem hentar best. Ef sá tími er ekki laus verður úthlutaður nýr tími.

Mikilvægt er að hafa heilsufarsbók hunds með í grunnhundamat. Hundar skulu auk þess vera í stífum taumi (alls ekki í flexy taumi). Í grunnhundamati eru allir hundar í taumi, rétt eins og í öllum hundavinaheimsóknum á vegum Rauða krossins.

Endilega skráið ykkur á grunnhundamatið!

Tekið er á móti fyrirspurnum varðandi grunnhundamatið í tölvupósti, vinaverkefni@redcross.is, eða í síma, 570 4226/5704228.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest!