Rauði krossinn styður við flutning á 30 súrefnisvélum til Sómalíu
Alþjóðastarf, Alþjóðastarf 20. desember 2021Rauði krossinn hefur ákveðið að styrkja COVID-19 neyðarviðbrögð í Sómalíu með því að styðja flutning á 30 súrefnisvélum til Sómalíska Rauða hálfmánans sem gegnir mikilvægu stoðhlutverki við þarlend yfirvöld og tekur virkan þátt í baráttunni við COVID-19 faraldurinn. Óhætt er að segja að súrefnisvélarnar komi að góðum notum.
Brynja Dögg Friðriksdóttir sendifulltrúi á björgunarskipi á Miðjarðarhafi
Alþjóðastarf, Alþjóðastarf 14. desember 2021Í nóvember sl. hélt Brynja Dögg Friðriksdóttir til starfa um borð í björgunarskipinu Ocean Viking sem Rauði krossinn og samtökin SOS Mediterranee halda úti á Miðjarðarhafi. Áhöfn skipsins hefur það hlutverk að bjarga flóttafólki úr sjávarháska.
Íslandsbanki styður heimsmarkmið 4, 5 og 9 í samvinnu við Rauða krossinn
Almennar fréttir, Alþjóðastarf 29. nóvember 2021Rauði krossinn og Íslandsbanki undirrituðu síðastliðin föstudag samning um 4 milljón króna stuðning bankans við langtímaþróunarsamvinnu Rauða krossins í Malaví. Áhersla er lögð á að bæta aðgengi berskjaldaðs fólks á dreifbýlum svæðum að heilbrigðisþjónustu og öruggu drykkjarvatni. Fjármagn Íslandsbanka verður nýtt til þess að efla þann verkefnisþátt sem felst í valdeflingu kvenna og ungmenna.
Starfsmenn Marel söfnuðu 37.7 milljónum fyrir Rauða krossinn með átakinu “Move the Globe”
Almennar fréttir, Alþjóðastarf 17. nóvember 2021Í byrjun september sl. hófst átakið “Move the Globe” hjá 6.800 starfsmönnum Marel í 30 löndum. Markmiðið var að safna áheitum fyrir alþjóðaverkefni Rauða krossins með hreyfingu og líkamsrækt. Alls safnaðist 250.000 evrur, eða 37.7 milljónir íslenskra króna. Þann 4. nóvember sl. heimsótti sendiherra Brasilíu gagnvart Íslandi, Enio Cordeiro, höfuðstöðvar Marel á Íslandi og við það tækifæri tók Kristín S. Hjálmtýsdóttir framkvæmdastjóri Rauða krossins á Íslandi formlega á móti söfnunarágóðanum fyrir hönd alþjóða Rauða krossins.
Rauði krossinn styður við verkefni alþjóða Rauða krossins við Miðjarðarhaf
Alþjóðastarf, Alþjóðastarf 15. nóvember 2021Rauði krossinn á Íslandi hefur ákveðið að styðja mannúðar- og lífsbjargandi verkefni alþjóða Rauða krossins fyrir flóttamenn á landi og sjó við Miðjarðarhaf með fjárframlagi og mannafla. Ocean Viking bjargaði alls 314 konum, körlum og börnum í yfirstandandi leiðangri og er nú í höfn í Augusta á Sikiley. Þar komst fólkið loks í land í dag, sumir eftir tíu daga um borð í skipinu.
Origo og Rauði krossinn\r\nbæta tæknilega innviði og hjálparstarf í Afríku
Almennar fréttir, Alþjóðastarf 21. október 2021Rauði krossinn á Íslandi hefur frá árinu 2013 staðið fyrir metnaðarfullu verkefni sem miðar að því að byggja getu afrískra landsfélaga Rauða kross hreyfingarinnar í upplýsinga- og samskiptatækni. Origo er nýjasti samstarfsaðili Rauða krossins í verkefninu.
Samfélagsleg trjárækt í Sierra Leone til að sporna við áhrifum loftslagsbreytinga og auka fæðuöryggi
Alþjóðastarf, Alþjóðastarf 07. október 2021Rauði krossinn á Íslandi, með stuðningi utanríkisráðuneytisins, mun í samstarfi við Rauða krossinn í Sierra Leone og Landgræðsluskólann hefja trjáræktarverkefni í nokkrum héruðum í Sierra Leone á komandi vikum og mánuðum
40 milljónir til Afganistan
Almennar fréttir, Alþjóðastarf 28. september 2021Neyðarsöfnun Rauða krossins fyrir stríðshrjáða í Afganistan lauk í dag. Í kjölfar þessarar söfnunar mun Rauði krossinn á Íslandi senda alls um 40 milljónir króna til Alþjóðaráðs Rauða krossins sem sinnir lífsbjargandi mannúðaraðstoð í Afganistan og hefur gert um langt skeið.
Rauði krossinn í Hafnarfirði, Garðabæ og Kópavogi
Innanlandsstarf 19. apríl 2021Rauða kross deildirnar í Kópavogi og í Hafnarfirði og Garðabæ hafa verið sameinaðar. Stofnfundur sameinaðrar deildar var haldinn í dag, 4. mars 2021.
Sameining deilda
Innanlandsstarf 04. mars 2021Í dag, 4. mars var stofnfundur sameinaðrar deildar Rauða krossins í Kópavogi og Rauða krossins í Hafnarfirði og Garðabæ.\r\nNýtt nafn sameinaðrar deildar var samþykkt og er það: Rauði krossinn í Hafnarfirði, Garðabæ og Kópavogi.
Aðalfundur Rauða krossins í Hafnarfirði og Garðabæ
Innanlandsstarf 03. febrúar 2021Rauði krossinn í Hafnarfirði og Garðabæ boðar til aðalfundar þann 17. febrúar kl. 18.00
Aðalfundur Rauða krossins í Kópavogi
Innanlandsstarf 03. febrúar 2021Rauði krossinn í Kópavogi boðar til aðalfundar þann 18. febrúar kl. 20.00