Alþjóðastarf
Neyðarsöfnun Rauða krossins á Íslandi vegna jarðskjálfta í Tyrklandi og Sýrlandi
06. febrúar 2023
Rauði krossinn á Íslandi hefur ákveðið að hefja neyðarsöfnun vegna jarðskjálftanna í Tyrklandi og Sýrlandi.
Jarðskjálfti að stærð 7,8 átti sér stað í suðurhluta Tyrklands í nótt og norðurhluta Sýrlands í nótt og öflugir eftirskjálftar hafa fylgt í kjölfarið.
Skjálftarnir hafa kostað mörg mannslíf og valdið mikilli eyðileggingu, bæði í Tyrklandi og nágrannaríkinu Sýrlandi. Á annað þúsund eru þegar látnir í Tyrklandi og Sýrlandi. Óttast er að tölur látinna og slasaðra hækki á næstu klukkustundunum og sólarhringum og að frekari eftirskjálftar verði á svæðinu.
Það mun taka stjórnvöld nokkurn tíma að meta skemmdirnar að fullu, sérstaklega á dreifbýlum svæðum, en margar byggingar hafa skemmst mikið og hundruð húsa hafa hrunið í tyrkneskum og sýrlenskum borgum. Óttast er að fjöldi fólks sitji fast í rústum húsa og miklar skemmdir hafa orðið á innviðum og það torveldar allt hjálparstarf á svæðinu. Einnig hamla erfið veðurskilyrði björgunaraðgerðum en kalt er á svæðinu.
Alþjóðahreyfing Rauða krossins og Rauða hálfmánans er í stöðugu sambandi við Rauða hálfmánann í Tyrklandi og í Sýrlandi og hefur þegar veitt aðstoð og er að undirbúa enn frekari aðstoð, meðal annars á sviði heilbrigðisaðstoðar. Rauði hálfmáninn í Tyrklandi hefur þegar sent á hamfarasvæðin mikið magn mannúðaraðstoðar svo sem neyðarskýli, matvæli og blóðbirgðir til að mæta þörfum þolenda skjálftanna.
Tyrknesk stjórnvöld hafa óskað eftir alþjóðlegri neyðaraðstoð og og tyrkneski Rauði hálfmáninn er að undirbúa opinbera söfnun til að styðja við fórnarlömb jarðskjálftans. Sýrlenski Rauði hálfmáninn hefur einnig óskað eftir fjárhagsstuðningi úr neyðarsjóðum alþjóðasambands Rauða krossins.
Til að bregðast við brýnni þörf fyrir mannúðaraðstoð á svæðinu hefur Rauði krossinn á Íslandi þegar hafið neyðarsöfnun og biðlar til almennings að leggja söfnuninni lið og styðja við lífbjargandi hjálparstarf í Tyrklandi og Sýrlandi. Hægt er að leggja söfnuninni lið með því að leggja inn á reikning Rauða krossins númer 0342-26-12, kt. 530269-2649 og með því að senda SMS-ið HJALP í síma 1900 og styðja söfnunina um 2.900 kr. Einnig er hægt að styrkja söfnunina í gegnum Aur/ Kass: raudikrossinn
Atli Viðar Thorstensen, sviðsstjóri alþjóðasviðs Rauða krossins á Íslandi, segir að verið sé að kanna hvort þörf verði á að senda sendifulltrúa frá Rauða krossinum á vettvang og að það komi í ljós fljótlega, en Rauði krossinn á Íslandi hefur stutt við flóttafólk í Tyrklandi með aðstoð utanríkisráðuneytisins og Mannvina Rauða krossins um árabil og sömuleiðis veitt mikilvæga mannúðaraðstoð í Sýrlandi.
„Sé þörf á okkar fólki mun það ekki láta sitt eftir liggja til að koma til móts við þolendur skjálftanna í Tyrklandi og Sýrlandi. En okkar framlög og stuðningur veltur á stuðningi almennings og stjórnvalda og því köllum við eftir fjárstuðningi svo hægt sé að bregðast við hratt við brýnni neyð á svæðinu. Á skjálftasvæðunum í Tyrklandi er auk heimamanna mikill fjöldi sýrlenskra flóttamanna og því margir sem koma til með að treysta á utanaðkomandi aðstoð, sérstaklega fyrstu sólarhringana eftir þessar hamfarir,“ segir hann.
--
Hvernig veitir þú stuðning?
Smellið hér til að leggja neyðarsöfnuninni lið https://www.raudikrossinn.is/styrkja/stakur-styrkur/
Sendu SMS-ið HJALP í síma 1900 til að styðja söfnunina um 2.900 kr
Leggðu inn með Aur/Kass: raudikrossinn
Leggðu inn á reikning Rauða krossins: 0342-26-12, kt. 530269-2649
--
Rauði krossinn á Íslandi tilheyrir allri þjóðinni, en án stuðning hennar getur félagið ekki sinnt þeim fjölmörgu mikilvægu verkefnum sem það stendur fyrir, samfélaginu til góðs. Hjálpaðu okkur að hjálpa öðrum með því að gerast Mannvinur.
Fréttir af starfinu
Fréttayfirlit100 ára afmælishátíð Rauða krossins í Hörpu
Almennar fréttir 20. desember 2024Rauði krossinn á Íslandi náði þeim áfanga á dögunum að ná 100 ára aldri. Tímamótunum hefur verið fagnað með ýmsum hætti, svo sem greinaskrifum, viðtölum, útgáfu viðamikils rits um sögu félagsins og nú síðast hátíðarfundar í Hörpu þann 10. desember síðastliðinn.
Mannúð í heila öld - Rauði krossinn á Íslandi fagnar 100 ára afmæli
Almennar fréttir 10. desember 2024Í dag, 10. desember, fagnar Rauði krossinn á Íslandi 100 ára afmæli sínu. Árið 1924 var félagið stofnað vegna aukinnar vitundar um þörfina fyrir mannúðarstarfsemi á Íslandi en skortur var á kerfisbundinni neyðaraðstoð og félagslegum stuðningi fyrir þá sem lentu í áföllum. Í dag er Rauði krossinn orðinn að ómissandi hluta af samfélaginu, með sjálfboðaliðum og starfsmönnum um allt land.
Rauði krossinn 100 ára - söfnun í samstarfi við Finnsson & Co
Almennar fréttir 03. desember 2024Rauði krossinn á Íslandi fagnar 100 ára afmæli sínu þann 10. desember 2024. Af því tilefni höfum við sett af stað landssöfnun þar sem við óskum eftir stuðningi fyrirtækja og félagasamtaka um land allt við innlend verkefni RKÍ. Við njótum liðsinnis fyrirtækisins Finnsson & Co við söfnunina, en það hefur áður sinnt sambærilegum útgáfu- og fjáröflunarverkefnum.