Alþjóðastarf
28 milljónir til hjálparstarfs í Sómalíu
31. janúar 2023
Rauði krossinn á Íslandi hefur sent 28 milljónir króna til Sómalíu vegna alvarlegs fæðuskorts í landinu.
Rauði krossinn á Íslandi sendi nýverið um 28 milljónir króna til Sómalíu til að mæta alvarlegum fæðuskorti í landinu. Fjármagnið verður notað til að veita lífsbjargandi mannúðaraðstoð á svæðinu með því að gefa fólki aðgang að vatni, matvælum, fjárhagsaðstoð og heilbrigðisaðstoð.
Tugmilljónir í fjölda ríkja í Afríku sunnan Sahara standa frammi fyrir alvarlegum fæðuskorti, en ástandið er einna verst í Sómalíu, þar sem milljónir eru á barmi hungursneyðar og fæðuskorturinn hefur leitt til ýmissa félagslegra vandamála. Ýmsir áhrifaþættir hafa skapað þessar erfiðu aðstæður, fyrst og fremst langvinnir þurrkar sem orsakast af loftslagsbreytingum og vopnuðum átökum í Evrópu sem hamla matvælaflutningum.
„Það ástand sem við erum að verða vitni að sýnir okkur glögglega að heimurinn er ein heild og það sem gerist á einu svæði getur hæglega haft áhrif á önnur svæði jafnvel þótt þau séu víðsfjarri í kílómetrum talið,“ segir Atli Viðar Thorstensen sviðsstjóri alþjóðasviðs Rauða krossins á Íslandi.
„Átökin í Úkraínu, ofan í miklar og neikvæðar loftslagsbreytingar, hafa þannig skert aðgengi milljóna að stöðugri og næringarríkri fæðu og er ástandið víða svo alvarlegt að mikill fjöldi barna og fullorðinna stendur jafnvel frammi fyrir hungurdauða verði ekkert að gert. Því miður hafa átökin í Úkraínu einnig haft þau áhrif að kastljós fjölmiðla og áhugi almennings nær æ sjaldnar til annarra neyðarástanda, jafnvel af þeirri stærðargráðu sem margir tugir milljóna standa frammi fyrir í Afríku.
Við hjá Rauða krossinum viljum með dyggum stuðningi utanríkisráðuneytisins og Mannvina Rauða krossins leggja okkar lóð á vogarskálarnar og hvetja almenning á Íslandi til að leggja okkur lið svo fólk geti haft val um að dvelja á sínum heimaslóðum í stað þess að leggja mögulega á flótta með þeim hættum sem því fylgja,“ segir hann að lokum.
--
Rauði krossinn á Íslandi tilheyrir allri þjóðinni, en án stuðning hennar getur félagið ekki sinnt þeim fjölmörgu mikilvægu verkefnum sem það stendur fyrir, samfélaginu til góðs. Hjálpaðu okkur að hjálpa öðrum með því að gerast Mannvinur.
Fréttir af starfinu
FréttayfirlitHéldu tombólu til styrktar Rauða krossinum
Almennar fréttir 10. júlí 2024Fjórir vinir héldu tombólu á Eiðistorgi til að safna fyrir Rauða krossinn.
Héldu tombólu til að styrkja Rauða krossinn
Almennar fréttir 08. júlí 2024Vinirnir Haukur Leó Styrmisson og Angelo Snær Klemensson Semey héldu tombólu til að safna fyrir Rauða krossinn á Íslandi.
Tæplega 8.5 milljónir króna söfnuðust á Öll sem eitt tónleikunum
Innanlandsstarf 21. júní 2024Þann 7. maí síðastliðinn fóru samstöðutónleikarnir Öll sem eitt fram í Háskólabíó, en markmið tónleikanna var að sýna samstöðu með þolendum átakanna í Gaza og safna fé til að styrkja hjálparstarf þar. Á tónleikunum kom fram fjöldinn allur af frábæru íslensku tónlistarfólki fyrir framan fullan sal af gestum, en auk þessu gátu áhorfendur heima í stofu fylgst með tónleikunum í beinni útsendingu á Stöð 2.