Almennar fréttir

Tveir sendifulltrúar frá Íslandi taka þátt í að reisa vettvangssjúkrahús í Al-Hol flóttamannabúðunum í Sýrlandi

03. júní 2019

Tveir sendifulltrúar frá Rauða krossinum á Íslandi taka þátt í að reisa vettvangssjúkrahús í flóttamannbúðunum í Al-Hol í Sýrlandi, þau Orri Gunnarsson, tæknimaður í vatnshreinsimálum (WASH) og Jóhanna Elísabet Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur.

\r\n

 

Rauði hálfmáninn í Sýrlandi (SARC), Alþjóðaráð Rauða krossins (ICRC) og Rauði krossinn í Noregi hafa nú reist vettvangssjúkrahús í flóttamannabúðunum Al-Hol í Sýrlandi. Þörfin fyrir að hjúkra sjúklingum sem særst hafa í átökum eða þjást af veikindum fer sífellt vaxandi. Tveir sendifulltrúar frá Rauða krossinum á Íslandi taka þátt í þessu verkefni, þau Orri Gunnarsson, tæknimaður í vatnshreinsimálum (WASH) og Jóhanna Elísabet Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur.

 

\"190526_Al_Hol_046\"

 

Sífellt fleiri flýja stríðsátök og ofbeldi í Sýrlandi og neyðast til þess að setjast að í flóttamannabúðunum Al-Hol. Í dag búa um 74 þúsund manns í búðunum. Um 90% af fólkinu eru konur og börn.

Aðstæðurnar í Al-Hol eru afar átakanlegar. Fleiri en 63 þúsund manns sem komið hafa í flóttamannabúðirnar síðan í desember, koma frá svæðum þar sem ekkert aðgengi er að heilbrigðisþjónustu vegna átaka, vegna skorts á lyfjum eða vegna þess að heilsugæslur hafa verið lagðar í rúst.

Sjúkrahúsið var ekki aðeins sett á fót til þess að mæta mannúðarþörfum fólks í flóttamannabúðunum, heldur einnig til þess koma fórnarlömbum flóðanna sem urðu í dreifbýli við borgina Hassakeh í mars og apríl til hjálpar. Þar hafa sjálfboðaliðar sýrlenska hálfmánans verið í kappi við tímann við að reyna að bjarga fólki.

Þar sem sumarið er að ganga í garð, hefur starfsfólk Rauða krossins á svæðinu einnig áhyggjur af þeim áhrifum sem sífellt hækkandi hitastig kann að hafa á fólkið í Al-Hol.

Í byrjun mun sjúkrahúsið hýsa 30 rúm, neyðarherbergi, herbergi fyrir aðgerðir og hvíldarherbergi fyrir fólk nýkomið úr aðgerð.

Teymi fyrstu vaktarinnar á vettvangssjúkrahúsinu mun samanstanda af heilbrigðisstarfsfólki frá Rauða krossinum Íslandi, Noregi, Danmörku og Finnandi.

Tveir sendifulltrúar frá Íslandi
Tveir sendifulltrúa frá Rauða krossinum á Íslandi taka þátt í þessu verkefni, þau Orri Gunnarsson verkfræðingur vinnur sem tæknimaður í vatnshreinsimálum (WASH) og Jóhanna Elísabet Jónsdóttir, hjúkrunarfræðingur sinnir störfum sem deildar- og bráðahjúkrunarfræðingur. Þau hafa bæði starfa á neyðartjaldsjúkrahúsum áður m.a. í Bangladesh á síðasta ári. Að auki hefur Hólmfríður Garðarsdóttir verið á svæðinu frá því í mars og sinnt störfum sem ráðgjafi í heilbrigðismálum í sendinefnd Alþjóða Rauða krossins.

Rauði  krossinn lagt sérstaka áherslu á mannúðaraðstoð í Sýrlandi
„Ástandið í Sýrlandi er víða mjög slæmt vegna vopnaðra átaka þar í landi undanfarin átta ár og einna verst er það í Al-Hol búðunum“, segir Atli Viðar Thorstensen sviðsstjóri hjá Rauða krossinum. „Við höfum lagt sérstaka áherslu á að veita mannúðaraðstoð til Sýrlands undanfarin ár og nágrannaríkja Sýrlands sem hýsa milljónir flóttamanna. Það eru fá eða engin samtök sem hafa viðlíka aðgengi að þolendum átaka innan Sýrlands. Starfsfólk og sjálfboðaliðar Rauða hálfmánans eru auðvitað heimafólk og þekkja aðstæður betur út og inn. Sömuleiðis hefur Alþjóðaráð Rauða krossins starfað í Sýrlandi frá því í sex daga stríðinu 1967.“ Vegna sérstaks aðgengis og samhæfingarhlutverks Rauða hálfmánans eru það oft sjálfboðaliðar og starfsfólk á vegum Rauða hálfmánans og Rauða krossins sem koma hjálpargögnum annarra til þolenda auk eigin hjálpargagna. Mikil áhersla er á að ræða við stríðandi fylkingar og kynna þeim Genfarsamningana sem eiga að vernda alla þá sem ekki taka þátt í átökunum. Með aukinni fræðslu má koma í veg fyrir að saklausir borgarar verði að flýja heimili sín og jafnvel heimaland.

Þá er lögð áhersla á að koma þolendum kynferðislegs ofbeldis til aðstoðar og að koma í veg fyrir slíka glæpi sem kynferðislegt ofbeldi á átakasvæðum er.

„Neyðartjaldsjúkrahúsið sem nú er sett upp er ætlað til að koma til móts við þarfir þeirra sem hafast við í Al-Hol búðunum og er gott dæmi um hversu öflugt og lífsnauðsynlegt hjálparstarf er unnið á vettvangi vopnaðra átaka í Sýrlandi“, segir Atli.

Myndbandið sem hér fylgir sýnir uppsetningu sjúkrahússins. Bæði Jóhanna og Orri bregða fyrir í myndbandinu.