Almennar fréttir

Rauði krossinn fagnar viðbrögðum stjórnvalda en bendir áfram á sára neyð í Afganistan

25. ágúst 2021

Rauði krossinn fagnar afgerandi viðbrögðum íslenskra stjórnvalda og þeirri ákvörðun að taka á móti allt að 120 flóttamönnum frá Afganistan. Þau sem eftir verða í heimalandi sínu eru þó ekki síður í brýnni þörf fyrir mannúðaraðstoð og horfir Rauði krossinn því til þess hóps í von um að tryggja heilbrigðisþjónustu, COVID-forvarnir, aðgengi að hreinu vatni og fæðuöryggi.

Rauði krossinn fagnar afgerandi viðbrögðum íslenskra stjórnvalda og þeirri ákvörðun að taka á móti allt að 120 flóttamönnum frá Afganistan. Þetta telur félagið sýna skýran vilja til að styðja við Afgani, bæði þá sem nú takast á við afleiðingar átaka, fæðuskort og alvarlegan heilbrigðisvanda í Afganistan sem og þá sem hingað kunna að koma á næstu dögum, vikum eða mánuðum í boði stjórnvalda. Rauði krossinn á Íslandi hefur starfað með flóttafólki frá árinu 1956 eða þegar flóttafólk kom hingað til lands í fyrsta sinn í boði stjórnvalda. Allt frá því hefur Rauði krossinn gegnt mikilvægu hlutverki í móttöku, aðlögun og hagsmunagæslu flóttafólks ásamt aðstoð og þjónustu við fólk í leit að alþjóðlegri vernd.

Á undanförnum árum hafa stjórnvöld lagt metnað í að byggja upp kerfi og þjónustu í kringum samræmda móttöku flóttafólks sem er vel til þess fallið að aðstoða fólk frá Afganistan sem stjórnvöld reyna nú að koma hingað til lands. Rauði krossinn - sem sinnir hlutverki sínu við móttöku flóttafólks í nánu samráði og samvinnu við stjórnvöld, sveitarfélög og aðra hagsmunaaðila - telur að getan til að taka á móti því flóttafólki sem stjórnvöld hafa skilgreint sé til staðar og muni ganga vel. Af verkefnum Rauða krossins má nefna að veita flóttafólki sálrænan stuðnings en félagið væntir þess að brýn þörf verði fyrir sálræna aðstoð eftir það sem á undan er gengið í Afganistan. Þá hefur Rauði krossinn verið í samband við fjölda Afgana sem hér búa og mun standa fyrir sérstökum upplýsingafundi fyrir þann hóp á morgun, fimmtudag.

  • Í tengslum við komu flóttafólks til Íslands leitar Rauði krossinn að sjálfboðaliðum til að styðja við einstaklinga og fjölskyldur fyrstu mánuðina í nýju landi. Skráðu þig hér ef þú hefur áhuga á að taka þátt í gefandi og áhugaverðu verkefni. 

 

\"\"

Þó Rauði krossinn lýsi ánægju sinni með ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að taka strax á móti 120 flóttamönnum frá Afganistan vill félagið minna á þau hundruð þúsunda sem reyna að flýja í átt að landamærum Írans og Pakistan í von um að komast þannig frá Afganistan. Á sama tíma hafa yfirvöld í Íran og Pakistan gefið út að þar verði ekki tekið á móti flóttafólki frá Afganistan en það sem af er árinu 2021 hefur um 600 þúsund afgönskum flóttamönnum verið snúið til baka. Átök, þurrkar og COVID-19 bætast svo ofan á þá sáru neyð sem fyrir ríkti í landinu.

Rauði krossinn lýsir þungum áhyggjum af þróun mála í Afganistan eftir að Talibanar náðu þar völdum og hóf félagið neyðarsöfnun fyrir íbúa Afganistans þann 17. ágúst síðastliðinn. Allt fé sem safnast rennur beint til mannúðaraðstoðar Alþjóðaráðs Rauða krossins (ICRC) í Afganistan en Rauði krossinn hefur einstakt aðgengi til að sinna mannúðaraðstoð til handa þolendum átaka í landinu og þess ástands sem þar hefur nú skapast. Þörfin fyrir lífsbjargandi aðstoð er gríðarleg en á bilinu 12-20 milljónir einstaklinga þarfnast nú mannúðaraðstoðar eða allt að helmingur afgönsku þjóðarinnar og má teljast líklegt að fjölga muni í þeim hópi á næstu vikum. Söfnunarfé Rauða krossins verður fyrst og fremst nýtt til að tryggja nauðsynlega heilbrigðisþjónustu fyrir fólk á átakasvæðum en auk þess til að bregðast við þurrkum í landinu sem hafa leitt til þess að um 11 milljónir búa nú við fæðuskort.

\"\"

Þó mikilvægt sé að Ísland og aðrar þjóðir taki flóttafólki frá Afganistan opnum örmum þá mun bróðurpartur afgönsku þjóðarinnar ekki fara neitt af ýmsum ástæðum. Þau sem eftir verða í heimalandi sínu eru því ekki síður í brýnni þörf fyrir mannúðaraðstoð og horfir Rauði krossinn því til þess hóps í von um að tryggja heilbrigðisþjónustu, COVID-forvarnir, aðgengi að hreinu vatni og fæðuöryggi.

Neyðarsöfnun Rauða krossins hefur gengið mjög vel til þessa og hafa fjölmargir lagt fram aðstoð sína. Þá er sérstaklega ánægjulegt að ríkisstjórnin hafi ákveðið að veita 60 milljónir til mannúðaraðstoðar í Afganistan en því framlagi verður skipt jafnt á milli Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Alþjóðaráðs Rauða krossins.

Svona má leggja neyðarsöfnun Rauða krossins lið:

  • SMS: Senda HJALP í símanúmerið 1900 (2.900 kr.)

  • Aur: @raudikrossinn eða 1235704000

  • Kass: raudikrossinn eða 7783609

  • Söfnunarreikningur Rauða krossins: 0342-26-12, kt. 530269-2649

\"\"