Almennar fréttir

Neyðarsöfnun Rauða krossins\r\nfyrir Jemen skilar 47 milljónum króna - jafngildir matarbirgðum fyrir 49 þúsund börn í mánuð

27. desember 2018

Í dag lauk neyðarsöfnun Rauða krossins á Íslandi vegna neyðarástands í Jemen. Söfnunin sem hófst í byrjun nóvember gekk framar vonum og nemur framlag Rauða krossins alls um 47 milljónum króna sem fer til lífsbjargandi hjálparstarfs í Jemen.

Í dag lauk neyðarsöfnun Rauða krossins á Íslandi vegna neyðarástands í Jemen. Söfnunin sem hófst í byrjun nóvember gekk framar vonum og nemur framlag Rauða krossins alls um 47 milljónum króna sem fer til lífsbjargandi hjálparstarfs í Jemen.

„Við erum svo ótrúlega ánægð með framlag almennings sem sýnir að fólk á Íslandi lætur sig neyð fólks annars staðar svo sannarlega varða. Við höfum fengið framlög frá innlendum félögum, fólk hefur gefið í neyðarsöfnunina í stað þess að gefa jólagjafir, börn hafa safnað peningum með hlutaveltu og einstaklingar hafa gefið afrakstur vinnu sinnar til neyðarsöfnunarinnar eins og hún Magnea Sif Agnarsdóttir hárgreiðslukona á Skugga hárgreiðslustofu gerði þegar hún afhenti Rauða krossinum yfir 70 þúsund krónur. Ef þetta er ekki sannur jólaandi og samhugur í verki þá veit ég ekki hvað. Þá viljum við einnig þakka utanríkisráðuneytinu sérstaklega fyrir þeirra stuðning en framlag ráðuneytisins er í einu orði sagt frábært “ segir Atli Viðar Thorstensen, sviðsstjóri hjálpar- og mannúðarsviðs Rauða krossins. 

Söfnunarféð samanstendur af framlagi almennings og Rauða kross deilda og nærsamfélaga þeirra um land allt samtals 15,5 milljónum, framlagi utanríkisráðuneytisins upp á 21 milljón og svo tíu milljóna framlagi Mannvina Rauða krossins á Íslandi. Upphæðin kemur að góðun notum og á sem dæmi að geta dugað fyrir mat fyrir 49 þúsund börn í Jemen í einn mánuð.

Ákveðið var að framlengja neyðarsöfnun Rauða krossins fram yfir jól þar sem stríðandi fylkingar undirrituðu nýverið samning um vopnahlé sem gildir í hafnarborginni Hodeida. „Við bindum miklar vonir við að friður komist á og að raunverulegt uppbyggingarstarf geti hafist en áður en svo getur orðið þarf að bregðast við með lífsbjargandi mannúðaraðstoð og þess vegna kemur framlagið frá Íslandi á svo mikilvægum tíma“, segir Atli sem vonar að aðgengi hjálparsamtaka að þolendum átaka aukist nú frá því sem áður var. „Rauði krossinn og Rauði hálfmáninn eru landsdekkandi og hefur aðstoðin ekki aðeins miðast við stærstu borgir og bæi líkt og algengt er því vegna sérstöðu sinnar hefur hreyfingin haft aðgengi að stöðum þar sem fá eða engin önnur alþjóðleg samtök og stofnanir hafa geta komið til móts við þolendur átaka og hungurs.“

Hafnarborgin Hodeida gegnir lykilhlutverki við að koma bráðnauðsynlegum hjálpargögnum til íbúa Jemen en átök í borginni hafa lengi lokað mikilvægustu flutningsleiðum inn í landið. Allt kapp verður nú lagt á að koma hjálpargögnum og nauðsynlegri aðstoð til íbúa Jemen sem þjást vegna langvarandi átaka, fæðuskorts, útbreiðslu sjúkdóma, lélegs aðgengi að heilsugæslu og hreinu vatni, og skorts á helstu nauðsynjavörum.

Upphæðinni sem hefur safnast mun verða komið áleiðis til Alþjóðaráðs Rauða krossins sem starfar á svæðinu í samstarfi við jemenska Rauða hálfmánann. Þrír sendifulltrúar Rauða krossins á Íslandi hafa starfað við hjálparstarf Alþjóðaráðs Rauða krossins í Jemen og þar af einn sem hefur farið til Jemen í þrígang og séð hvernig ástandið hefur farið versnandi eftir því sem á átökin leið.

Rauði krossinn á Íslandi vill þakka landsmönnum öllum fyrir frábærar viðtökur við neyðarsöfnuninni. Af þessum viðbrögðum er ljóst að íslenska þjóðin vill rétta fram hjálparhönd þar sem neyðin er mest. Þeir sem vilja enn leggja sitt af mörkum til hjálparstarfs erlendis og hér heima geta gerst Mannvinir Rauða krossins en sá stuðningur skiptir sköpum í öllu hjálparstarfi Rauða krossins, bæði hér heima og erlendis.