Almennar fréttir
Hamfarahlýnun hrekur fólk á flótta
26. september 2019
Rauði krossinn á Íslandi tekur þátt í loftslagsverkfalli á föstudag.
Hamfarahlýnun hrekur fólk á flótta
Rauði krossinn á Íslandi og systurfélög okkar um heim allan taka þátt í baráttunni gegn hamfarahlýnun. Næstkomandi föstudag ætlum við að taka þátt í loftslagsverkfalli með unga fólkinu og krefjast þess að stjórnvöld geri allt sem í þeirra valdi stendur til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi. Stjórnvöld verða að vera tilbúin að taka þær erfiðu ákvarðanir sem þarf að taka til að raunverulega draga úr losun. Tíminn er naumur. Hamfarahlýnun snertir okkur öll og afleiðingarnar munu aðeins aukast á komandi áratugum. Þegar auðlindir þverra og sífellt minna verður til skiptana aukast líkur á átökum. Fleiri og fleiri munu neyðast til að yfirgefa heimili sín og leggja á flótta vegna loftslagsbreytinga, allt að 140 milljónir á næstu þremur áratugum.
Hvers vegna skipta loftslagsmál Rauða kross hreyfinguna máli?
Með hlýnun jarðar hafa öfgar í veðurfari aukist og náttúruhamfarir haft skyndilegri og alvarlegri afleiðingar í för með sér. Brothættustu samfélögin verða verst úti þegar fellibyljir geysa yfir, þurrkar verða langvinnir og flóð örari. Þess vegna skiptir máli að bregðast strax við. Hvert og eitt samfélag þarf að vera í stakk búið til að bregðast við þessari miklu vá.
Í síðustu viku kom út skýrsla Alþjóðasambands Rauða krossins og Rauða hálfmánans (IFRC) The Cost of Doing Nothing eða Kostnaðurinn við aðgera ekki neitt sem segir að það muni kosta okkur mun meira að gera ekkert, að stöðva ekki hlýnunina strax. Án alvöru aðgerða mun árlegur kostnaður neyðaraðstoðar vegna hamfara margfaldast. Svartsýnustu spár áætla 20 milljarða bandaríkjadollara árið 2050, það eru um 2500 milljarðar íslenskra króna.
Menntun stúlkna er eitt af því áhrifaríkasta sem við gerum fyrir loftslagið
Rauði krossinn á Íslandi leggur áherslu á styðja stúlkur til mennta. Samkvæmt Project Drawdown sem hefur tekið saman áreiðanlegustu staðreyndirnar um það hvernig best má sporna við hlýnun jarðar er menntun stúlkna í 6. sæti og kemur þar á eftir m.a. minnkaðri matarsóun og björgun frumskóga. Með aukinni menntun eru stúlkur líklegri til að giftast síðar á lífsleiðinni og fresta barneignum. Þær eignast færri og heilbrigðari börn.
Margt vinnur gegn því að stúlkur sæki skóla víða í lágtekjulöndum heims. Það er oftast verkefni stúlkna og kvenna að sækja vatn fyrir heimilið og stundum eyða stúlkur mörgum klukkustundum í að ganga að næsta vatnsbóli á meðan bræður þeirra sækja skóla. Rauði krossinn leggur því áherslu á að byggja vatnsbrunna við skólana svo stúlkur geti gert hvorutveggja. Skólastúlkur njóta leiðsagnar sjálfboðaliða í stúlknahópum Rauða krossins þar sem þær mynda dýrmæt tengsl, ræða áskoranir sínar og hvetja hverja aðra til dáða. Þær fá þjálfun í því að standa á sínu og neita karlmönnum sem bjóða þeim pening fyrir kynlíf. Þá er unnið með þorpsnefndum og þorpshöfðingjum að því að koma í veg fyrir barnahjónabönd. Allt eru þetta undirstöðuatriði í baráttunni fyrir menntun stúlkna.
Menntun stúlkna er valdeflandi fyrir stúlkur og konur um allan heim. Menntun stúlkna er eitt beittasta vopn okkar í baráttunni gegn hamfarahlýnun.
Ég vil hvetja þig til að mæta a föstudag og krefjast aðgerða!
Kristín S. Hjálmtýsdóttir,
framkvæmdastjóri Rauða krossins á Íslandi
Fréttir af starfinu
Fréttayfirlit100 ára afmælishátíð Rauða krossins í Hörpu
Almennar fréttir 20. desember 2024Rauði krossinn á Íslandi náði þeim áfanga á dögunum að ná 100 ára aldri. Tímamótunum hefur verið fagnað með ýmsum hætti, svo sem greinaskrifum, viðtölum, útgáfu viðamikils rits um sögu félagsins og nú síðast hátíðarfundar í Hörpu þann 10. desember síðastliðinn.
Mannúð í heila öld - Rauði krossinn á Íslandi fagnar 100 ára afmæli
Almennar fréttir 10. desember 2024Í dag, 10. desember, fagnar Rauði krossinn á Íslandi 100 ára afmæli sínu. Árið 1924 var félagið stofnað vegna aukinnar vitundar um þörfina fyrir mannúðarstarfsemi á Íslandi en skortur var á kerfisbundinni neyðaraðstoð og félagslegum stuðningi fyrir þá sem lentu í áföllum. Í dag er Rauði krossinn orðinn að ómissandi hluta af samfélaginu, með sjálfboðaliðum og starfsmönnum um allt land.
Rauði krossinn 100 ára - söfnun í samstarfi við Finnsson & Co
Almennar fréttir 03. desember 2024Rauði krossinn á Íslandi fagnar 100 ára afmæli sínu þann 10. desember 2024. Af því tilefni höfum við sett af stað landssöfnun þar sem við óskum eftir stuðningi fyrirtækja og félagasamtaka um land allt við innlend verkefni RKÍ. Við njótum liðsinnis fyrirtækisins Finnsson & Co við söfnunina, en það hefur áður sinnt sambærilegum útgáfu- og fjáröflunarverkefnum.