Almennar fréttir
Endurtekið efni um endursendingar á börnum til Grikklands
22. nóvember 2021
Í upphafi árs hófu íslensk stjórnvöld að synja barnafjölskyldum á flótta um efnislega meðferð umsókn sinna en ákvarða þess í stað að endursenda þær til Grikklands, þrátt fyrir að hafa metið aðstæður þar óviðunandi aðeins nokkrum mánuðum áður. Rauði krossinn, Barnaheill og UNICEF á Íslandi telja að hagsmunir barna séu ekki metnir á heildstæðan hátt og að ákvarðanir um endursendingar til Grikklands skapi börnum hættu sem íslensk stjórnvöld beri ábyrgð á.
Í upphafi árs hófu íslensk stjórnvöld að synja barnafjölskyldum á flótta um efnislega meðferð umsókn sinna en ákvarða þess í stað að endursenda þær til Grikklands, þrátt fyrir að hafa metið aðstæður þar óviðunandi aðeins nokkrum mánuðum áður. Rauði krossinn, Barnaheill og UNICEF á Íslandi telja að hagsmunir barna séu ekki metnir á heildstæðan hátt og að ákvarðanir um endursendingar til Grikklands skapi börnum hættu sem íslensk stjórnvöld beri ábyrgð á. Rétt er að taka fram að enn sem komið er hafa engar fjölskyldur verið fluttar til Grikklands en nokkrar bíða þess að verða fluttar þangað.
Óviðunandi aðstæður í Grikklandi
Þær barnafjölskyldur sem hlotið hafa alþjóðlega vernd í Grikklandi, leitað hingað til lands og óskað eftir alþjóðlegri vernd hafa undantekningarlaust búið við óviðunandi aðstæður í Grikklandi. Yfirgnæfandi hluti þeirra hefur búið í yfirfullum flóttamannabúðum þar sem öryggi, hreinlæti og aðbúnaði er verulega ábótavant. Þegar fjölskyldurnar hafa fengið vernd neyðast þær til að yfirgefa búðirnar innan nokkurra mánaða auk þess sem þær missa þá lágu framfærslu sem þeim er tryggð á meðan þær bíða eftir svari við umsókn sinni um vernd.
Í nær öllum tilvikum ná foreldrar barnanna ekki að framfleyta fjölskyldunni vegna kerfisbundinna hindrana og gríðarlega mikils atvinnuleysis meðal flóttafólks í landinu. Þá er aðgengi flóttafjölskyldna að húsnæði í Grikklandi alvarlegt vandamál en mörg þeirra hafast við í ólöglegu húsnæði eða á götunni.
Áætlað er að einungis þriðjungur barna með alþjóðlega vernd í Grikklandi hafi verið formlega skráð til náms á árunum 2018-2019 auk þess sem Covid-19 faraldurinn hefur haft slæm áhrif á menntun flóttabarna af ýmsum ástæðum. Réttur flóttafólks til félagslegs stuðnings er nær enginn eða óaðgengilegur.
Aðgengi flóttafjölskyldna að grísku heilbrigðiskerfi er verulega skert, m.a. vegna tungumálaörðugleika. Því miður glímir stór hluti þeirra flóttabarna sem koma hingað til lands eftir að hafa dvalið í Grikklandi við heilsufarsvandamál. Mörg þeirra hafa ekki fengið grunnbólusetningar, dæmi eru um að börn sem hingað hafa komið frá Grikklandi þjáist af næringarskorti vegna einhæfrar fæðu. Tannheilsu er almennt ábótavant auk þess sem útbrot og húðsjúkdómar sem rekja má til óviðundandi húsnæðis eru algeng. Þá glíma mörg þeirra við kvíða, svefnvandamál og þroskafrávik sem rekja má til óviðunandi aðstæðna í Grikklandi.
Rangt mat íslenskra stjórnvalda á hagsmunum barna
Samkvæmt barnalögum og Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna er íslenskum stjórnvöldum skylt að hafa ávallt það sem barni er fyrir bestu í forgangi þegar teknar eru ákvarðanir um málefni þess. Það þýðir að líta verður heildstætt á líf barnsins og möguleika þess til þess að lifa og þroskast.
Kærunefnd útlendingamála og Útlendingastofnun hafa undanfarið metið það svo að flutningur barnafjölskyldna til Grikklands samrýmist hagsmunum barna þegar litið er m.a. til öryggis þeirra, velferðar og félagslegs þroska. Í stað þess að líta heildstætt á líf barnsins hefur umfjöllun í ákvörðunum stjórnvalda um aðstæður flóttabarna í Grikklandi undanfarið nær eingöngu einskorðast við lagalegan rétt barna á
flótta til skólagöngu og einingu fjölskyldunnar. Umfjöllun stjórnvalda staðfestir í raun bága stöðu flóttabarna í Grikklandi og takmarkað aðgengi þeirra að menntun. Áhersla nefndarinnar á einingu fjölskyldunnar er því miður beitt til að réttlæta synjun á umsóknum barnanna, þar sem það er jú andstætt hagsmunum barna að skilja þau frá foreldrum sínum sem synjað er í sama úrskurði.
Rauði krossinn, Barnaheill og UNICEF á Íslandi telja túlkun Útlendingastofnunar og kærunefndar á barnaverndarlögum, útlendingalögum og Barnasáttmálanum vera ranga. Hafa ber hagsmuni barnsins að leiðarljósi í ákvörðunum er varða börn. Mat á hagsmunum þeirra skal ekki unnið út frá forsendum í málum foreldra þeirra heldur skal fyrst og fremst leggja mat á hagsmuni barnanna út frá þeirra aðstæðum.
Hver sá sem kynnt hefur sér aðstæður og réttindi barna á flótta í Grikklandi sér að sú niðurstaða, að það sé hagsmunum barna fyrir bestu að endursenda þau ásamt foreldrum sínum til Grikklands, er ekki fengin með heildstæðu mati sem metur alla mikilvæga þætti fyrir líf og þroska barns. Tilgangur mats á hagsmunum barns er meðal annars að koma í veg fyrir mismunun á grundvelli uppruna barna eða lagalegrar stöðu. Ákvarðanataka stjórnvalda verður að endurspegla þá grundvallarreglu um jafnræði með raunverulegu, heildstæðu hagsmunamati fyrir börn á flótta.
Fyrir hönd Rauða krossins, UNICEF og Barnaheills.
Kristín S. Hjálmtýsdóttir, framkvæmdastjóri Rauða Krossins
Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdarstjóri UNICEF
Erna Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla
Fréttir af starfinu
Fréttayfirlit
Sunna Ósk ráðin upplýsingafulltrúi
Almennar fréttir 10. mars 2025Sunna Ósk Logadóttir hefur verið ráðin upplýsingafulltrúi Rauða krossins á Íslandi. Hún hefur þegar tekið til starfa.

Aðalfundur Rauða krossins í Fjarðabyggð
Almennar fréttir 06. mars 2025Aðalfundur Rauða krossins í Fjarðabyggð verður haldinn fimmtudaginn 13. mars kl. 18:00 í Múlanum - samvinnuhúsi, Bakkavegi 5, 740 Neskaupsstað

Þingmenn skuldbinda sig til að tala fyrir málefnum barna á Alþingi
Almennar fréttir 03. mars 2025Hópur tíu þingmanna allra flokka á Alþingi skrifuðu undir yfirlýsingu í dag sem fól í sér skuldbindingu um að hafa Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna að leiðarljósi í störfum sínum á þinginu og leitast við að tileinka sér barnvæn sjónarmið. Þetta var í sjöunda skiptið sem talsmenn barna á Alþingi eru skipaðir og er verkefnið samstarf Barnaréttindavaktarinnar. Að Barnaréttindavaktinni standa níu félagasamtök sem láta sig réttindi og velferð barna varða. Það eru Barnaheill, Heimili og skóli, Mannréttindaskrifstofa Íslands, Rauði krossinn, Samfés, UMFÍ, UNICEF á Íslandi, Þroskahjálp og ÖBÍ réttindasamtök.