Almennar fréttir
Aðalfundur við óvenjulegar aðstæður í dag
23. maí 2020
Endurskoðuð lög, stefna til ársins 2030 og nýir stjórnarmenn kjörnir.
Aðalfundur Rauða krossins á Íslandi fór fram í dag, á átta stöðum á landinu. Um einn fund var að ræða en vegna kórónuveirufaraldursins var brugðið á það ráð að skipta fundinum niður á nokkra fundarstaði víðsvegar um landið með aðstoð tækninnar; á tveimur stöðum í Reykjavík, Hafnarfirði, Borgarnesi, Ísafirði, Akureyri, Egilsstöðum og í Vík.
Frú Eliza Reid forsetafrú flutti ávarp úr höfuðstöðvum Rauða krossins að Efstaleiti 9 og Sveinn Kristinsson, formaður Rauða krossins á Íslandi, þakkaði félagsmönnum og sjálfboðaliðum sérstaklega fyrir þeirra starf og viðbúnað sl. mánuði en margir sjálfboðaliðar hafa breytt verkefnum sínum meðan á samkomubanni stendur og fjölmargir brugðist við og aðstoðað í verkefnum tengdum kórónuveirufaraldrinum.
Stefna til ársins 2030 samþykkt samhljóða
Ný stefna Rauða krossins á Íslandi til ársins 2030 var samþykkt þar sem helstu áskoranir í starfi Rauða krossins til næstu tíu ára eru kortlagaðar en meðal þeirra eru loftslagsbreytingar, krísur og hamfarir, aðgengi að heilbrigðisþjónustu, fólksflutningar og valdaójafnvægi. Áhersla er m.a. lögð á öflugt hjálparstarf í nærsamfélagi, virkt og gefandi starf sjálfboðaliða og traust og ábyrgt félag.
Þá voru einnig ný lög fyrir félagið samþykkt með miklum meirihluta.
Ný stjórn kjörin
Varaformaður Rauða krossins var kjörin Silja Bára Ómarsdóttir, dósent í alþjóðasamskiptum, sem setið hefur í stjórn sl. tvö ár. Þá voru þau Sveinn Þorsteinsson, umsjónarmaður fasteigna hjá Ragnari Guðgeirssyni, Þóra B. Niklásdóttir, starfsmaður í Stöðvarfjarðarskóla, Baldur Steinn Helgason, verkefnastjóri hjá Jónum Transport, Elín Ósk Helgadóttir, aðjunkt við lagadeild Háskólans í Reykjavík og Gréta María Guðmundsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri Krónunnar kjörin í stjórn og þau Anna Rósa Magnúsdóttir, forstöðumaður í eldhúsi Sjúkrahússins á Akureyri og Pétur Pétursson, slökkviliðsstjóri hjá Brunavörnum Árnessýslu, kjörnir varamenn.
Þá var fráfarandi stjórnarmönnum, þeim Rögnu Árnadóttur, Helga Ívarssyni, Oddrúnu Kristjánsdóttur, Gísla Rafni Ólafssyni og Melkorku Kristinsdóttur þakkað fyrir sitt framlag til félagsins.
Mikilvægi fjárhagslegs og félagslegs öryggis fólks sem býr við fátækt
Fundurinn samþykkti samhljóða ályktun um mikilvægi þess að huga að fjárhagslegu og félagslegu öryggi fólks sem býr við mikla fátækt:
Rauði krossinn á Íslandi leggur áherslu á mikilvægi þess að ávallt sé hugað sérstaklega að fjárhagslegu og félagslegu öryggi þess fólks sem býr við mikla fátækt.
Fátækt er ljótur blettur á okkar samfélagi og þegar þrengir að verður staða fólks sem býr við fátækt enn erfiðari en ella og því nauðsynlegt að styðja sérstaklega við þennan hóp.
Miklu atvinnuleysi fylgir ótti um afkomu og félagslegt óöryggi, mikil hætta er á langvarandi áhrifum þessa sem verða ekki hvað síst þungbær fyrir börn í viðkvæmri stöðu.
Rauði krossinn leggur áherslu á mikilvægi þess að allir hafi jöfn tækifæri til þátttöku í samfélaginu og að gerðar verði ráðstafanir til að koma til móts við þá sem minnst mega sín.
Rauði krossinn hvetur því ríki og sveitafélög til að gæta sérstaklega að fólki sem býr við fátækt á Íslandi.
Fréttir af starfinu
FréttayfirlitJólabasar Kvennadeildar 23. nóvember
Almennar fréttir 18. nóvember 2024Jólabasar Kvennadeildar Reykjavíkurdeildar Rauða krossins á Íslandi verður haldinn laugardaginn 23. nóvember kl. 13:00 - 16:00 í Safnaðarheimili Óháða safnaðarins, Háteigsvegi 56, 105 Reykjavík.
Seldu perl til styrktar Rauða krossinum
Almennar fréttir 01. nóvember 2024Fjórar vinkonur gengu í hús í Síðuhverfi á Akureyri og seldu perl til styrktar Rauða krossinum.
Rauði krossinn og íslensk stjórnvöld undirrita heit á sviði mannúðarmála
Almennar fréttir 31. október 2024Íslensk stjórnvöld og Rauði krossinn á Íslandi hafa undirritað fimm heit á sviði mannúðarréttar og mannúðarmála.