Láttu gott af þér leiða og fáðu skattaafslátt í leiðinni
Árið 2022 var fyrsta heila skattaárið frá því að skattalegir hvatar til að styrkja almannaheillafélög voru settir fram, sjá lög nr. 32/2021. Þessi lög gera það að verkum að í ár munu einstaklingar og fyrirtæki hljóta afslátt af framlögum sínum til almannaheillafélaga sem birtist á skattskýrslu.
Hér eru dæmi um hvað einstaklingar geta fengið í skattaafslátt miðað við mismunandi fjárhæðir ef gengið er út frá 38% skatti:
- Mannvinur sem styrkir með 3.500 kr á mánuði greiðir í raun 2.170 kr og fær 1.330 kr í skattaafslátt, eða 15.960 kr á ári. Fyrir mannvin sem styrkir með 5.000 kr á mánuði nemur afslátturinn 1.900 kr á mánuði, eða 22.800 kr á ári.
- Einstaklingur sem greiðir 10 þúsund króna styrk í eingreiðslu til Rauða krossins fær svo 3.800 kr skattafslátt. Við fáum 10 þúsund kr til góðra verka, en þú borgar í raun 6.200 kr.
- Einstaklingur sem greiðir 50 þúsund króna styrk til Rauða krossins fær 19 þúsund króna skattafslátt. Við fáum 50 þúsund kr til góðra verka, en þú borgar í raun 31 þúsund kr.
Styrkfjárhæðin þarf að vera að lágmarki 10 þúsund krónur á ári og hámarks skattafsláttur fæst fyrir 350 þúsund króna framlag á ári. Hámarks upphæðin er tvöföld fyrir hjón, þ.e. 700 þúsund krónur.
Til að nýta skattaafsláttinn og láta gott af þér leiða getur þú gerst Mannvinur hér. Þú þarft ekkert að gera nema taka ákvörðun um að styrkja Rauða krossinn. Skatturinn og Rauði krossinn sjá svo um að ganga frá afslættinum.
Fyrirtæki sem unnu með Rauða krossinum að sjálfbærnisamstarfi eða vörusamstarfi, tóku þátt í neyðarsöfnunum eða studdu verkefni félagsins með einum eða öðrum hætti geta einnig átt von á afslætti af styrkjum sem nemur allt að 1,5% af tekjuskattsstofni. Ekki eru neinar reglur um hámark eða lágmark.Ef miðað er við 20% skatt getur afsláttur af 1.000.000 kr. framlagi því numið 200.000 kr.
Fyrirtæki geta lesið meira um styrktarleiðir fyrirtækja hér og eru einnig velkomin í hóp Mannvina.
*Tekjuskattshlutfall er breytilegt. Hér er gert ráð fyrir skattahlutfalli meðaltekna. Fjárhæðir birtast á heilu hundraði króna.