Vefverslun
Gjafabréf á 4 tíma skyndihjálparnámskeið
ATH Gjafabréfið er afgreitt við næsta virka dag eða samdægurs (virka daga) ef pöntun berst fyrir kl 13. Gjafabréfið verður sent á netfang kaupanda.
Námskeiðið er ætlað öllum, 14 ára eða eldri sem vilja læra skyndihjálp og endurlífgun og öðlast öryggi, færni og þekkingu í að veita nærstöddum aðstoð í bráðatilfellum með því að beita einföldum aðferðum í skyndihjálp á öruggan hátt.
Á námskeiðinu læra þátttakendur grundvallaratriði í skyndihjálp og endurlífgun. Markmiðið er að þátttakendur verði hæfir til að veita fyrstu hjálp á slysstað. Mælt er með endurmenntun annað hvert ár.
