Velkomin á námskeiðsvef Rauða krossins
Vefnámskeiðin okkar
Hér má finna öll vefnámskeið Rauða krossins á Íslandi s.s. grunnnámskeið, vefnámskeið í skyndihjálp, auk hundruði annara námskeiða frá IFRC, öðrum landsfélögum Rauða krossins og samstarfsaðilum (WHO, UNICEF ofl.). Auðvelt og fljótlegt er að útbúa aðgang en mikilvægt er að velja Ísland í skráningarferli til að fá aðgang að námskeiðum Rauða krossins á Íslandi. Námskeiðsvefurinn er öllum opinn.
Hér er að finna leiðbeiningar um innskráningu og notkun á námskeiðsvefnum okkar Learning Platform.
Smelltu hérAthugið að það er nauðsynlegt að skrá inn kennitölu á Learning Platform til þess að námskeiðið birtist inn á Mínar síður.
Grunnnámskeið Rauða krossins
Inngangur að Rauða krossinum
Þetta námskeið er sérstaklega ætlað sjálfboðaliðum og starfsfólki Rauða krossins en er opið öllum þeim sem langar að fræðast um Rauða krossinn. Á námskeiðinu er lögð áhersla á upphaf hreyfingarinnar og grunngildi Rauða krossins, markmið og stefnu félagsins og störf sjálfboðaliða. Námskeiðið er aðgengilegt hér.
Inngangur að skyndihjálp
Undirstöðuatriði skyndihjálpar
Kynntu þér undirstöðuatriði í skyndihjálp með þessu inngangsnámskeiði áður en þú tekur verklegar æfingar. Á námskeiðinu verður fjallað um 13 ólík viðfangsefni skyndihjálpar og mikilvægi þess að hjálpa fólki í neyð. Þú öðlast grunnþekkingu á því að greina lífshættulega áverka og veikindi og hvernig á að veita fyrstu aðstoð. Það sem þú lærir á þessu vefnámskeiði getur aldrei endurspeglað raunverulegar aðstæður að fullu. Námskeiðið er aðgengilegt hér.
Skyndihjálp og naloxone
Undirstöðuatriði í skaðaminnkun og notkun naloxone
Þetta námskeið er sérstaklega ætlað starfsfólki og sjálfboðaliðum Rauða krossins í skaðaminnkandi verkefnum, hvort heldur sem er á landsvísu eða í nærsamfélagi en er opið öllum þeim sem langar að fræðast um skyndihjálp, skaðaminnkun og notkun naloxone. Í upphafi námskeiðs verður farið yfir upplýsingar og staðreyndir um skaðaminnkun, ópíóíðalyf og ofskömmtun þeirra. Í framhaldi verður farið í grundvallaratriði skyndihjálpar og fjallað verður um viðfangsefni skyndihjálpar sem þú þarft að hafa grunnþekkingu á til að veita aðstoð og bregðast við ef grunur er um ofskömmtun ópíóíða. Þessi viðfangsefni eru sálræn fyrstu hjálp, hliðarlega, endurlífgun og grunur um ofskömmtun og gjöf Naloxone.
Námskeiðið er aðgengilegt hér.
Inngangur að ábyrgri stjórnun
Inngangur að stjórnarstörfum og rekstrarumhverfi
Þetta námskeið er sérstaklega ætlað sjálfboðaliðum Rauða krossins í stjórnum og nefndum, hvort heldur sem er á landsvísu eða í nærsamfélagi en er opið öllum þeim sem langar að fræðast um rekstrar- og lagaumhverfi Rauða krossins. Á námskeiðinu er lögð áhersla á Alþjóðahreyfingu Rauða krossins og Rauða hálfmánans sem og Rauða krossinn á Íslandi. Þá verður farið yfir hlutverk sjálfboðaliða í stjórnum, mikilvægar dagsetningar í rekstri og starfsemi og grunngildi Rauða krossins, markmið og stefnu félagsins. Námskeiðið er aðgengilegt hér.