Slys og veikindi ungbarna: yngri en 1 árs - Efstaleiti

Námskeið

12 Sep
Location Efstaleiti 9, 103 Reykjavík
Time 17:00 - 20:00
Instructor Katrín Ruth Þorgeirsdóttir
Price per person 12.000 ISK

Á námskeiðinu er lögð áhersla á grunnatriði almennrar skyndihjálpar, svo sem skoðun og mat á ástandi og endurlífgun. Farið er í viðbrögð við algengum slysum og alvarlegum veikindum og hvernig best er að styðja við börnin í slíkum tilfellum.

Signup
course-image
Námskeið fyrir verðandi foreldra, nýbakaða foreldra og forráðamenn ungabarna, auk annarra sem sinna börnum undir 1 árs.

Á námskeiðinu er lögð áhersla á grunnatriði almennrar skyndihjálpar, svo sem skoðun og mat á ástandi og endurlífgun. Farið er í viðbrögð við algengum slysum og alvarlegum veikindum og hvernig best er að styðja við börnin í slíkum tilfellum. Námskeiðið gagnast öllum þeim sem umgangast ungabörn, hvort sem er í starfi eða daglegu lífi.

Þátttakendur þurfa að vera 14 ára eða eldri. Athugið að forsenda fyrir námskeiðinu er að þátttaka sé næg. Þátttakendur þurfa að vera skráð áður en námskeiðið hefst og ekki er tekið við skráningum á staðnum. Ef námskeiðið er fullt er ekki hægt að bæta við fleiri þátttakendum.

Hægt er að fá vatn, te og kaffi en fólk er hvatt til að taka með sér nesti.

Nánari upplýsingar í síma 570-4000 og á namskeid@redcross.is.

ATH! Þátttökugjald er ekki endurgreitt ef afbókun berst innan við þremur dögum fyrir námskeið og læknisvottorð liggur ekki fyrir.