Sálfélagslegur stuðningur í verkefnum með flóttafólki

Registration for an event

Personal information

Missing information
Missing information
Email is not valid
Missing information
Missing information
Missing information
Missing information
12 Feb
Location Háahlíð 9, 105 Reykjavík
Time 18:00 - 21:00
Instructor Þorsteinn Valdimarsson

Námskeiðið byggir á þjálfun Rauða krossins fyrir sjálfboðaliða í sálfélagslegum stuðningi í verkefnum með flóttafólki. Námskeiðið er hugsað fyrir skátaforingja sem hafa áhuga á málefninu og starfi með hópnum. Námskeiðið er kennt á íslensku.

Þetta námskeiðið er fyrir þá sem vilja gerast sjálfboðaliðar í skátastarfi með flóttafólki og byggir á grunnþjálfun Rauða krossins fyrir nýja sjálfboðaliða. Á námskeiðinu verður rætt um aðstæður, bakgrunn og algengar áskoranir flóttafólks.

Sálfélagslegur stuðningur mætir félags- og sálrænum þörfum fólks - t.d. þörf fyrir virka hlustun, þörf fyrir félagslegar tengingar og þörf fyrir að tjá tilfinningar sínar. Á námskeiðinu fá sjálfboðaliðar tól til að styrkja hæfni sína og þekkingu til að veita flóttafólki slíkan stuðning. Sálfélagslegur stuðingur er einnig hjálplegur í daglegu lífi með fjölskyldu og vinum.

Kenndar verða aðferðir sálrænnar fyrstu hjálpar til að styðja við fólk í uppnámi og aðstoða það við að ná ró og stjórn á aðstæðum. Þessi færni getur hjálpað þátttakendum að vera til staðar og bregðast við þegar fólk þarf á stuðningi að halda.


Markmið námskeiðsins eru að þátttakendur öðlist:
· þekkingu á stöðu flóttafólks og algengum áskorunum þeirra,
· þekkingu á sálfélagslegum stuðningi og viti hvað það er og hvað ekki
· frekari þekkingu á viðbrögðum fólks í vanlíðan
· skilning á þremur lykilþáttum „Horfa, Hlusta og Tengja“
· færni í að veita sálræna fyrstu hjálp
· skilning á flóknum aðstæðum og viðbrögðum
· veri meðvitað um mikilvægi þess að huga einnig að sjálfum sér þegar aðstoða þarf aðra

Athugið að forsenda fyrir námskeiðinu er að þátttaka sé næg.

Tímasetning: Miðvikudagur, 12. febrúar, frá 18:00-21:00
Staðsetning: Háahlíð 9, 105 Reykjavík
Kennari: Þorsteinn Valdimarsson, verkefnastjóri RKÍ
Tungumál: Íslenska
Matur: Boðið verður upp á léttan kvöldverð á námskeiðinu.
Aðgengi og sérstakar þarfir: Hafið samband við kennara (thorsteinn@redcross.is) ef þú ert með séróskir varðandi aðgengi eða aðrar sérstakar þarfir.