Skaðaminnkun

Rauði krossinn starfrækir verkefni sem byggja á hugmyndafræði skaðaminnkunar í vinnu með einstaklingum sem eiga við vímuefnavanda að stríða

Umsækjendur um alþjóðlega vernd

Rauði krossinn heldur úti félagsstarfi og talsmannaþjónustu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd.

Flóttafólk og innflytjendur

Rauði krossinn á Íslandi hefur starfað með flóttafólki frá árinu 1956. Síðan þá hefur félagið gegnt lykilhlutverki í vali, aðlögun og hagsmunagæslu flóttafólks ásamt aðstoð og þjónustu við fólk í leit að alþjóðlegri vernd.

Aðstoð eftir afplánun

Aðstoð eftir afplánun er verkefni ætlað fólki sem hefur nýlokið fangelsisvist. Það er mikilvægt að fá stuðning þegar afplánun lýkur en mörgum getur reynst erfitt að hefja nýtt líf.

Hjálparsíminn 1717 og netspjallið

Ekkert vandamál er of stórt eða lítið fyrir Hjálparsímann 1717 og netspjall Rauða krossins. Hjálparsíminn er alltaf opinn, trúnaði og nafnleynd er heitið og hann er ókeypis.

Vinaverkefni

Vinaverkefnin miða að því að draga úr félagslegri einangrun og auka við félagslega þátttöku fólks. Hlutverk sjálfboðaliða er fyrst og fremst að veita félagsskap, nærveru og hlýju.

Sálræn fyrsta hjálp

Sálfélagslegur stuðningur er sérhæfð þjónusta við fólk sem lendir í áföllum og byggir á viðurkenndum aðferðum til að bregðast við bráðum áfallastreituviðbrögðum.

Leitarþjónusta og fjölskyldusameiningar

Rauði krossinn á Íslandi er hluti af leitarþjónustu alheimshreyfingar Rauða krossins og Rauða hálfmánans. Ef leita þarf á átakasvæðum er unnið í samvinnu við Alþjóðaráð Rauða krossins (ICRC).

Þróttur Grindvíkinga

Sjóðurinn miðar að því að efla seiglu Grindvíkinga. Fyrirtæki og félagasamtök geta sótt um styrk fyrir hópastarfi og samfélagslegum verkefnum sem stuðla að betri andlegri líðan eða eflir félagsleg tengsl.