Veftré  |  Hafa samband  |  Sjálfboðaliðar  
Geðheilsa

Laut

laut.jpg

Laut er fyrir þá sem finna ef til vill fyrir einmanaleika og einangrun, langar að hafa eitthvað fyrir stafni, sinna áhugamálum sínum eða bara komast í góðan félagsskap.  Við viljum gjarnan fá alla þá í heimsókn sem á þurfa að halda.

Heimili
Laut er fyrst og fremst heimili þar sem reynt er að skapa hlýlegt andrúmsloft, byggt á gagnkvæmu trausti og virðingu.  Í Laut er alltaf heitt á könnunni og  í hádeginu er einnig hægt að fá mat.

Afþreying og félagslíf
Í Laut er margt til afþreyingar. Hægt er að vinna að myndlist og ýmiskonar handavinnu eða jafnvel aðstoða við matargerð. Í húsinu er einnig ágætis þvotta- og baðaðstaða. Hægt er að grípa í spil, lesa eða bara njóta afslöppunar á annan hátt.

Fyrir þá sem vilja er í boði fjölbreytt félagslíf. Meðal annars er farið í göngu- og sundferðir eða leik- og kaffihús. Haldin eru námskeið og farið í ferðalög.

Við erum opin fyrir óskum og hugmyndum gestanna.

Opnunartími
Mánudaga til föstudaga kl. 9:30 -16:00
Laugardaga  13-16

Laut
Brekkugötu 34, Akureyri
sími: 462 6632
netfang: laut@simnet.is


sumarsofnun2010.jpg
hvarthrengir.jpg
haiti_hnappur_2.jpg
Ljósmyndasafnið
flodbylgjan_litil.jpg
raudakrosshusidr_litill.jpg
flottamenn.jpg
veroldivanda_litil.jpg
skyndihjalparp.jpg
urki_2009.jpg
banner_vissir_thu.gif