Helstu verkefni Rauða kross Íslands
Rauði kross Íslands bregst við neyð jafnt innanlands sem utan og veitir aðstoð er gerir fólk hæfara til að takast á við erfiðleika og bregðast við áföllum. Félagið stendur vörð um mannréttindi og virðingu einstaklinga.
Rauði kross Íslands er sjálfboðahreyfing 19 þúsund félagsmanna og 1.500 virkra sjálfboðaliða sem starfa í 50 deildum um allt land. Sérstaða Rauða krossins felst meðal annars í því að félagið starfar á afar breiðu sviði mannúðar- og hjálparstarfs í samræmi við grundvallarmarkmið Alþjóðahreyfingar Rauða krossins og Rauða hálfmánans.
Nokkur af verkefnum Rauða krossins eru:
Víðtækt alþjóðlegt hjálparstarf
Rauði kross Íslands sinnir víðtæku alþjóðlegu hjálparstarfi. Á hverju ári sendir félagið 20 til 25 sendifulltrúa til aðstoðar á vettvangi, bregst við neyðarástandi með fjárframlögum og aðstoðar við uppbyggingu landsfélaga Rauða krossins og Rauða hálfmánans.
Hjálparsími Rauða krossins 1717
Hjálparsími Rauða krossins er gjaldfrjáls sími mannaður af starfsmönnum og sjálfboðaliðum sem er opinn allan sólarhringinn fyrir þá sem þurfa aðstoð vegna depurðar, kvíða, þunglyndis, eða sjálfsvígshugsana. Um 12.000 manns hringja í 1717 á hverju ári, að meðaltali um 30 á dag.
Starf með geðfötluðum
Rauði kross Íslands rekur fjögur athvörf fyrir geðfatlaða. Þessum athvörfum er ætlað að veita þeim sem eiga við geðfötlun að stríða athvarf þar sem þeir geta komið og t.d. fengið sér heitan mat, lesið, málað eða farið í gönguferðir.
Aðstoð við aldraða og sjúka
Hundruð manna um allt land fá heimsóknarvin frá Rauða krossinum reglulega til sín. Kannanir Rauða krossins sýna að einsemd er alvarlegt vandamál í þjóðfélaginu.
Neyðarvarnir
Þegar hættuástand skapast vegna náttúruhamfara eða stórslysa fer neyðarvarnarkerfi Rauða krossins í gang. Hlutverk Rauða krossins er fjöldahjálp og félagslegt hjálparstarf, sem felst einkum í því að starfrækja fjöldahjálparstöðvar og söfnunarsvæði aðstandenda auk þess að veita upplýsingar til fólks á neyðarstundu.
Skyndihjálp
Á hverju ári læra sex til átta þúsund Íslendingar skyndihjálp á vegum Rauða krossins. Samkvæmt samningi við stjórnvöld hefur félagið umsjón með skyndihjálparkennslu í landinu.
Sjúkraflutningar
Nær allir sjúkrabílar á Íslandi - alls 74 - tilheyra Rauða krossinum, sem kaupir þá, útbýr tækjum og rekur. Um tuttugu þúsund manns njóta árlega sjúkraflutninga Rauða krossins.
Athvarf fyrir heimilislausar konur
Konukot er næturathvarf Reykjavíkurdeildar Rauða krossins fyrir heimilislausar konur.
Starf með fólki af erlendum uppruna
Rauði kross Íslands stuðlar að bættri aðlögun innflytjenda að íslensku þjóðfélagi. Félagið er fulltrúi Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna hér á landi.
|
|