Veftré  |  Hafa samband  |  Sjálfboðaliðar  
austurland_kort2.jpg

Á Norðurlandi starfa tólf deildir Rauða krossins með samtals á þriðja þúsund félaga. Deildarsvæðið nær frá Strandasýslu í vestri til Þórshafnar í austri. Svæðasamstarfið er því það víðfeðmasta á landinu. Formaður svæðisráðs er Ingólfur Freysson Húsavíkurdeild.

Deildirnar vinna saman að mörgum verkefnum. Má þar nefna sjúkraflutninga, vinadeildasamstarf við Rauða kross deild í Maputo sem er höfuðborg Mósambik, rekstur sumarbúða fyrir fatlaða einstaklinga 16 ára og eldri og málefnum innflytjenda. Einnig er starfandi skyndihjálparhópur deilda á svæðinu sem hittist og æfir sig reglulega.

Tvö athvörf fyrir geðfatlaða eru rekin á svæðinu, Laut á Akureyri og Setrið á Húsavík.

Margar deildir bjóða uppá heimsóknaþjónustu en hún felst í því að sjálfboðaliði heimsækir gestgjafa sinn að jafnaði einu sinni í viku eða eftir samkomulagi. Boðið er uppá heimsóknir inn á einkaheimili og  stofnanir. Verkefnið hentar öllum sem hafa ánægju af mannlegum samskiptum og langar til að láta gott af sér leiða.

Sjálfboðaliðar fá þjálfun í samræmi við þau verkefnin sem þeir velja sér. Viljir þú koma til starfa með okkur þá eru verkefnin næg og þú munt taka þátt í að gera gott samfélag betra. 

Svæðisskrifstofa:
Guðný Björnsdóttir svæðisfulltrúi
Austurgörðum
671 Kópaskeri
Sími 465 2428
Farsími: 895 2428 
Netfang gudnybj@redcross.is

Fréttir af starfi deilda


Eldri fréttir

sumarsofnun2010.jpg
hvarthrengir.jpg
haiti_hnappur_2.jpg
Ljósmyndasafnið
flodbylgjan_litil.jpg
raudakrosshusidr_litill.jpg
flottamenn.jpg
veroldivanda_litil.jpg
skyndihjalparp.jpg
urki_2009.jpg
banner_vissir_thu.gif