Fjáröflun
 |
|
Aðalfjáröflun Rauða kross Íslands er tekjur félagsins af Íslandsspilum, sem eru í eigu Rauða krossins, Slysavarnafélagsins Landsbjargar og SÁÁ. Þessum tekjum er skipt þannig að ákveðið hlutfall rennur til alþjóðlegs hjálparstarfs, deilda félagsins og aðalskrifstofu.
Styrktarfélagar Rauða krossins eru mikilvægur þáttur í fjáröflun Rauða krossins. Þeir leggja til ákveðna upphæð mánaðarlega (yfirleitt) og fer það framlag óskipt til hjálparstarfs í Malaví. Auðvelt er að gerast mánaðarlegur styrktarfélagi með því að skrá sig hér.
Nokkur fyrirtæki eru aðalbakhjarlar Rauða krossins. Þar má nefna Símann hf. sem styrkir Hjálparsímann 1717, Eimskip sem flytur út fatnað fyrir Fatasöfnunina og Aríon banki sem styður sérstaklega við sjálfboðaliðastarfið. Einnig má nefna myntsöfnun um borð í flugvélum Iceland Express sem rennur í ferðasjóð fyrir fólk með geðraskanir – og árið 2010 gefur Frón 10 kr. af hverjum seldum pakka af matarkexi.
Annað hvert ár ræðst Rauði krossinn í landssöfnunina Göngum til góðs. Þá ganga sjálfboðaliðar í hús um allt land til að safna fé fyrir einhverju einu mikilvægu verkefni.
Nær undantekningarlaust bregðast almenningur og fyrirtæki vel við þegar Rauði krossinn knýr á dyr. Fyrirtæki styrkja gjarnan atburði eða verkefni, annað hvort með fjárframlögum, vörum eða verulegum afslætti á varningi eða þjónustu. Almenningur styður verkefni Rauða krossins með beinum fjárframlögum inn á reikning Hjálparsjóðs, með því að setja peninga í söfnunarbauka sem eru í helstu verslanamiðstöðvum eða með framlögum.
Hægt er að styrkja hjálparstarf Rauða krossins með því að greiða inn á reikning Hjálparsjóðs í banka 0342, hb. 26, reikn. 12, kt. 530269-2649. Einnig er hægt að hringja í síma 907 2020 og kr. 1200 dragast frá símareikningi þínum og að láta skuldfæra af kreditkorti með því að smella hér.
|
|