Laut
 |
|
Laut er fyrir þá sem finna ef til vill fyrir einmanaleika og einangrun, langar að hafa eitthvað fyrir stafni, sinna áhugamálum sínum eða bara komast í góðan félagsskap. Við viljum gjarnan fá alla þá í heimsókn sem á þurfa að halda.
Heimili
Laut er fyrst og fremst heimili þar sem reynt er að skapa hlýlegt andrúmsloft, byggt á gagnkvæmu trausti og virðingu. Í Laut er alltaf heitt á könnunni og í hádeginu er einnig hægt að fá mat.
Afþreying og félagslíf
Í Laut er margt til afþreyingar. Hægt er að vinna að myndlist og ýmiskonar handavinnu eða jafnvel aðstoða við matargerð. Í húsinu er einnig ágætis þvotta- og baðaðstaða. Hægt er að grípa í spil, lesa eða bara njóta afslöppunar á annan hátt.
Fyrir þá sem vilja er í boði fjölbreytt félagslíf. Meðal annars er farið í göngu- og sundferðir eða leik- og kaffihús. Haldin eru námskeið og farið í ferðalög.
Við erum opin fyrir óskum og hugmyndum gestanna.
Opnunartími
Mánudaga til föstudaga kl. 9:30 -16:00
Laugardaga 13-16
Laut
Brekkugötu 34, Akureyri
sími: 462 6632
netfang: laut@simnet.is
|
|