Veftré  |  Hafa samband  |  Sjálfboðaliðar  
Sálrænn stuðningur
Sálræn skyndihjálp - leiðbeiningar um viðurkennt verklag á vettvangi 17.03.2009

Handbók með leiðbeiningum í sálrænni skyndihjálp kom út í mars 2009. Að henni standa stofnanir sem koma að skipulagningu sálræns stuðnings á Íslandi sem eru auk Rauða kross Íslands, Landsspítali, Landlæknisembættið, Þjóðkirkjan og Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.

Um er að ræða íslenska þýðingu á leiðbeiningum sem þróaðar hafa verið af fjölda erlendra sérfræðinga sem sérhæfa sig í sálrænum stuðningi eftir alvarleg áföll. Um þýðingu sáu Dr. Berglind Guðmundsdóttir sálfræðingur og Þórunn Finnsdóttir sérfræðingur í klínískri sálfræði og er hún aðlöguð að íslenskum aðstæðum.

Tilgangur með útgáfu þessara leiðbeininga er að veita fagfólki og öðrum sem sinna sálrænum stuðningi á Íslandi tæki sem stuðlað getur að sem bestri þjónustu í kjölfar áfalla. Lengi hefur verið beðið eftir hagnýtum leiðbeiningum af þessu tagi en þær eru mikilvægt hjálpartæki fyrir þá sem sinna afleiðingum áfalla.

Handbókin er einungis útgefin í tölvutæki formi.
 

Til baka...