Almennar starfsreglur
Heimsóknavinir eru ólaunaðir sjálfboðaliðar og félagar í Rauða krossi Íslands og ber að starfa samkvæmt grundvallarmarkmiðum félagsins.
Heimsóknavinur er bundinn þagnarheiti, bæði siðferðilega og lagalega.
Heimsóknavinur á ekki að koma nálægt fjármálum gestgjafans, fara í sendiferðir, baða eða þrífa.
Heimsóknavinur má ekki þiggja verðmætar gjafir.
Miðað er við að hver heimsókn sé um 1 klst. á viku og ber heimsóknavini að tilkynna forföll tímanlega.
|
|