Veftré  |  Hafa samband  |  Sjálfboðaliðar  
VSÓ styður hjálparstarf Rauða krossins í Kákasusfjöllum 25.05.2010
Grímur M. Jónasson framkvæmdastjóri VSÓ Ráðgjafar og Kristján Sturluson framkvæmdastjóri Rauða krossins handsala samkomulag um stuðning fyrirtækisins við hjálparstarf félagsins í Kákasusfjöllum.

VSÓ Ráðgjöf og Rauði kross Íslands gerðu í dag samkomulag um stuðning fyrirtækisins við hjálparstarf félagsins í Georgíu og Armeníu á næstu 18 mánuðum. Markmið hjálparstarfsins er að byggja upp kerfi neyðarvarna í Kákasusfjöllum, þar sem jarðskjálftar, skriðuföll og flóð eru algeng og valda miklum búsifjum.

Herdís Sigurjónsdóttir, starfsmaður VSÓ Ráðgjafar og sérfræðingur um viðbúnað og viðbrögð vegna náttúruhamfara, mun samkvæmt samkomulaginu vinna í stýrihópi vegna uppbyggingar neyðarvarna Rauða kross félaganna í Georgíu og Armeníu.

Herdís var áður neyðarvarnafulltrúi Rauða kross Íslands en starfar nú við neyðarstjórnun og hefur m.a. aðstoðað sveitarfélög á Suðurlandi við greiningu og viðbragðsáætlunargerð eftir náttúruhamfarir.

Árið 1988 létust 25.000 manns í jarðskjálfta í Armeníu og síðan þá hafa tveir stórir skjálftar orðið á Kákasussvæðinu. Skógareyðing, fólksfjölgun og margvíslegar afleiðingar efnahagshruns síðustu tveggja áratuga hafa gert almenning berskjaldaðri fyrir flóðum og skriðuföllum.

Þrátt fyrir tíðar náttúruhamfarir, smáar og stórar, hefur skort verulega á viðbúnað og samræmd viðbrögð. Með stuðningi ECHO, mannúðarskrifstofu Evrópusambandsins, ætlar Rauði krossinn að stuðla að eflingu viðbúnaðar og samræmingu milli Rauða krossins og stjórnvalda á hverjum stað.

Í því sambandi kemur þekking og reynsla Íslendinga sér vel, enda búa Íslendingar við svipaðar hættur en hafa náð langt í skipulagningu viðbragða, þar sem sjálfboðahreyfingar og stjórnvöld vinna hlið við hlið. Rauði kross Íslands, Rauði kross Danmerkur og Alþjóðasamband Rauða kross félaga vinna saman að verkefninu með heimamönnum.

 

Til baka...
Deila þessari frétt: Senda frétt Facebook