Veftré  |  Hafa samband  |  Sjálfboðaliðar  
Íslenskur drengur gleður munaðarlausar frænkur á Haítí 25.01.2010
Friðbjörn Sigurðsson sendifulltrúi afhendir þeim Bedjinu og Britney bangsana sem Daníel Hans sendi þeim.

Daníel Hans Erlendsson, 13 ára gamall sonur Erlends Birgissonar sem er félagi í alþjóðabjörgunarsveit Landsbjargar, gladdi tvær litlar munaðarlausar stúlkur á Haítí nú um helgina. Frænkurnar Bedjina Dufreus þriggja ára og Britney Louis 1 árs fengu báðar bangsa að gjöf frá Daníel sem hann hafði beðið Friðbjörn Sigurðsson sendifulltrúa Rauða kross Íslands fyrir.

Daníel Hans fylgdist vel með fréttum af jarðskjálftanum á Haítí meðan faðir hans vann við björgunarstörf við mjög erfiðar aðstæður. Honum rann til rifja að sjá myndir af börnum sem misst höfðu allt sitt, og fékk þá hugmynd að einhverjir gætu notið góðs af böngsunum sem hann hafði fyrir löngu lagt til hliðar.

Bangsarnir tveir voru sendir til Haítí með flugvélinni sem fór út til að sækja íslensku alþjóðabjörgunarsveitina og Friðbjörn Sigurðsson, sendifulltrúi Rauða kross Íslands sem var á leið til starfa sem læknir á tjaldsjúkrahúsi þýska Rauða krossins, tók það að sér að gefa þá einhverjum sem á þurftu að halda.

Frænkurnar Bedjina og Britney komu á sjúkrahúsið í fylgd með 16 ára frænku sinni nú um helgina, og Friðbjörn fékk að heyra sögu þeirra. Þær höfðu báðar misst foreldra sína í jarðskjálftanum, og þurftu læknisaðstoð því þær höfðust við ásamt ættingjum sínum undir berum himni.  Þær urðu ósköp glaðar þegar þær fengu bangsana í fangið með fallegu bréfi frá Daníel Hans á Íslandi.


 

Til baka...
Deila þessari frétt: Senda frétt Facebook