 |
Alþjóða Rauði krossinn hefur aukið neyðarbeiðni sína um tæpa 100 milljónir bandaríkjadollara (12,5 milljarða íslenskra króna) til að aðstoða 300.000 íbúa á Haítí í 3 ár. Fyrri neyðarbeiðni hjálparsamtakanna frá 13. janúar hljóðaði upp á 10 milljónir dollara.
„Þessi nýja neyðarbeiðni endurspeglar þá gífurlegu þörf sem íbúar á Haítí munu glíma við næstu mánuði og ár," segir Kristján Sturluson, framkvæmdastjóri Rauða kross Íslands. „Jarðskjálftinn hefur lagt líf margra Haítíbúa hreinlega í rúst í allri merkingu þess orðs, og því margir sem þurfa á hjálp að halda til að byggja upp tilveru sína aftur og tryggja lífsviðurværi þeirra."
Neyðaraðgerðir Rauða krossins eru nú komnar á fullt skrið þrátt fyrir miklar hindranir á flutningi hjálpargagna til höfuðborgarinnar Port-au-Prince. Flugvélar Rauða krossins með hjálpargögn, búnað og fleiri neyðarteymi hafa fengið forgang til lendingar á flugvellinum. Einnig mun bílalest með hjálpargögn og hjálparstarfsmenn frá Dóminíska lýðveldinu koma til Port-au-Prince í kvöld, og er Hlín Baldvinsdóttir sendifulltrúi Rauða kross Íslands þar á meðal.
Höfuðáhersla Rauða krossins næstu daga er að koma í veg fyrir að farsóttir breiðist út með menguðu vatni, og svo dreifing matvæla. Fjórtán teymi alþjóðlegra sérfræðinga eru nú að störfum og munu meðal annars sjá um hreinsun vatns fyrir tugþúsundir íbúa, dreifingu hjálpargagna, og byggingu neyðarskýla. Fjölmennt lið heilbrigðisstarfsmanna vinnur nú einnig að því að setja upp tjaldsjúkrahús og hreyfanlegar sjúkrastöðvar til að koma særðum og sjúkum til tafarlausrar hjálpar, enda öll starfshæf sjúkrahús á hamfarasvæðinu löngu yfirfull.
Einnig verða settar upp sameiginlegar tjaldbúðir fyrir alla hjálparstarfsmenn Rauða krossins þar sem höfuðstöðvar Rauða krossins á Haítí hrundu í jarðskjálftanum. Sjálfboðaliðar Rauða krossins í Haítí hafa unnið allan sólarhringinn við björgun og umönnun slasaðra þrátt fyrir að hafa misst sjálfir ástvini og heimili sín í jarðskjálftanum.