Veftré  |  Hafa samband  |  Sjálfboðaliðar  
Prjóna teppi í iðjuþjálfun 24.06.2010
Margrét Aðalsteinsdóttir hópstjóri tekur við fyrsta teppinu.

Héraðs- og Borgarfjarðardeild Rauðakrossins tók á móti fyrsta teppinu sem vistmenn á sjúkrahúsið HSA á Egilsstöðum gerðu fyrir verkefnið Föt sem framlag í samvinnu við Rauða krossinn.

Þegar er byrjað að prjóna fleiri teppi fyrir verkefnið með dyggri aðstoð iðju- og virkniþjálfa.

Teppin fara með í ungbarnapakka sem sendir eru til neyðaraðstoðar erlendis. Á síðasta ári voru sendir 4.259 ungbarnapakkar til Hvíta Rússlands og Malaví.

Til baka...
Deila þessari frétt: Senda frétt Facebook