Veftré  |  Hafa samband  |  Sjálfboðaliðar  
Börn og umhverfi - bætt við einu námskeiði 28.05.2010

Mikil aðsókn hefur verið á námskeiðin Börn og umhverfi hjá öllum deildum Rauða krossins sem bjóða það þetta árið. Námskeiðið er fyrir börn fædd 1998 eða fyrr.

Hafnarfjarðardeild hefur því bætt við einu námskeiði sem verður haldið ef næg þátttaka næst dagana 9., 10., 14. og 15. júní.
Námskeiðið er haldið að Strandgötu 24, 2 hæð. Hvert námskeið er 16 kennslustundir og skiptist á 4 kvöld. Kennt er öll kvöldin frá kl. 17-20.

Verð kr. 7500.
Innifalið: Námsgögn, og hressing.  Staðfestingarskírteini að námskeiði loknu.
Nemendur mæti með pennaveski.

Skráning

Allar nánari upplýsingar er hægt að fá í síma 565-1222.
 

Til baka...
Deila þessari frétt: Senda frétt Facebook