|
Starf í deildum |
Storkurinn safnar garni og prjónum fyrir Rauða krossinn
19.05.2010
Nýverið bauð hannyrðaverslunin Storkurinn ehf á Laugavegi Rauða krossi Íslands að safna afgangsgarni og prjónum til að gefa deildum félagsins og stendur söfnunarkarfa merkt Rauða krossinum frammi í búðinni. Rauði krossinn þáði boðið með þökkum og nú þegar hefur innihald fyrstu körfunnar verið afhent.
|
|