Veftré  |  Hafa samband  |  Sjálfboðaliðar  
Flugslysaæfing á Ísafjarðarflugvelli 11.05.2010
Sjálfboðaliðar Rauða krossins hlúðu að slösuðum á flugslysaæfingunni á Ísafirði.

Um 20 sjálfboðaliðar deilda Rauða krossins á norðarverðum Vestfjörðum tóku þátt í flugslysaæfingu á Ísafjarðarflugvelli á laugardaginni. Sjálfboðaliðarnir sáu um opnun fjöldahjálparstöðvar og söfnunarsvæðis aðstandenda auk þess að sinna skyndihjálp og aðhlynningu á söfnunarsvæði slasaðra. Þá tóku einnig gestir frá Akranesdeild Rauða krossins þátt í æfingunni.

Yfir 200 manns tóku þátt í æfingunni, sem gekk mjög vel. Einn helsti tilgangur hennar er að láta reyna á áreiðanleika áætlunarinnar með því að leiða saman þá viðbragðsaðila sem hafa hlutverk í áætluninni og síðan nýta þá reynsluna til að bæta áætlunina.

Það var ISAVIA sem stóð fyrir æfingunni í samvinnu við heimamenn, Almannavarnadeild ríkislögreglustjórans, Rauða krossinn, Landspítala háskólasjúkrahús, Landhelgisgæsluna, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Slökkvilið Akureyrar, Neyðarlínuna og fleiri.
 

Til baka...
Deila þessari frétt: Senda frétt Facebook