Rauði kross Íslands bregst við eldgosi á Fimmvörðuhálsi
22.03.2010
Sjálfboðaliðar og starfsmenn Rauða kross Íslands brugðust hratt við þegar boð bárust um að eldgos væri hafið í Eyjafjöllum á fyrsta tímanum aðfararnótt sunnudags. Þegar mest var voru um 40 sjálfboðaliðar að störfum frá Rangárvallasýsludeild, Víkurdeild, Árnesingadeild, Hveragerðisdeild, Klausturdeild, neyðarnefnd Rauðakrossdeilda á höfuðborgarsvæðinu, Hjálparsímanum 1717, Fatasöfnun Rauða krossins og landsskrifstofu.
Rangárvallasýsludeild hófst strax handa klukkan eitt um nóttina við að undirbúa opnun fjöldahjálparstöðva á Hvolsvelli, Heimalandi, Varmahlíð og Hellu. Deildin naut aðstoðar Árnesinga- og Hveragerðisdeilda við mönnun stöðvanna, auk íbúa á bæjunum næst Heimalandi og Varmahlíð. Víkurdeild opnaði jafnframt fjöldahjálparstöð í Vík og fékk viðbótar mannskap frá sjálfboðaliðum Klausturdeildar.
Um 600 manns yfirgáfu heimili sín og var það mat allra sem komu að rýmingum og því sem þeim tengdist hafi gengið vonum framar. Um 100 manns nutu húsnæðisaðstoðar Rauða krossins um nóttina en aðrir fundu sér gististaði á annan hátt. Í fjöldahjálparstöðvunum var fólki boðið upp á sálrænan stuðning, mat og aðra aðstoð.
Hjálparsími Rauða krossins 1717 gegndi hlutverki upplýsingasíma almannavarna. Talsvert var um hringingar í símann og má þar nefna nokkrar hjálparbeiðnir sem komið var áfram til Samhæfingarstöðvar almannavarna.
Starfsfólk Rauða kross Íslands stóð vaktina í Samhæfingarstöðinni og sérstakri stjórnstöð sem staðsett er á landsskrifstofu félagsins ásamt sjálfboðaliðum úr neyðarnefnd deilda á höfuðborgarsvæðinu. Mikið annríki var í stöðinni um nóttina en talsvert dró úr því þegar leið á morguninn.
Öllum fjöldahjálparstöðvum var lokað síðdegis á sunnudag þegar rýmingum var aflétt að mestu leyti. Dregið var úr viðbúnaði félagsins í samræmi við það.
Frekari upplýsingar um neyðarvarnakerfi Rauða kross Íslands veitir Jón Brynjar Birgisson neyðarvarnafulltrúi, jon@redcross.is.