Veftré  |  Hafa samband  |  Sjálfboðaliðar  
Á þriðja hundrað milljónir til Haítí
Eftir Jóhann Hauksson ritstjóra DV |
02.02.2010

Fyrir helgi hafði á vegum Rauða kross Íslands safnast á sjötta tug milljóna króna með frjálsum framlögum til hjálparstarfsins á skjálftasvæðunum á Haítí. Framlag stjórnvalda er metið 70 til 80 milljónir króna. Nær þriðjungur allra framlaga kemur frá Jóni Ólafssyni vatnsframleiðanda. Greinin birtist í DV þann 1. febrúar 2010.

„Þetta eru ótrúleg og frábær viðbrögð,“ segir Sólveig Ólafsdóttir sviðsstjóri hjá Rauða krossi  Íslands um fjársöfnun meðal  landsmanna í þágu fórnarlamba hamfaraskjálftanna á Haítí 12. janúar síðastliðinn.

Fyrir helgi höfðu safnast um 50 milljónir króna á vegum Rauða kross Íslands. Þar af komu 12 milljónir króna frá Reykjavíkurborg eða sem nemur um 100 krónum fyrir hvern íbúa höfuðborgarinnar. Ýmis rausnarleg framlög bárust  að auki frá fyrirtækjum að sögn Sólveigar og nefnir hún sem dæmi einnar milljónar króna framlag frá Símanum.

Hlín Baldvinsdóttir reynir að halda greiðslumiðlun gangandi fyrir Rauða krossinn í löskuðu bankakerfi.
Friðbjörn Sigurðsson læknir starfar á tjaldsjúkrahúsi þýska Rauða krossins á Haítí.

Sólveig áætlar að búið sé að senda nauðsynjar og hjálpargögn nú þegar fyrir allt að 15 milljónir króna, en þar er með talinn búnaður sem fór með rústabjörgunarsveitinni strax á öðrum degi eftir  hamfaraskjálftana 12 janúar. Áætlað er að allt að 150 þúsund manns hafi látið lífið í skjálftunum.
Áætlað er að framlag stjórnvalda nemi  nú um 70 milljónum króna.  Þar er með talinn um 35 milljóna króna kostnaður vegna rústabjörgunarsveitarinnar sem send var með hraði til Haítí strax daginn eftir skjálftann mikla sem mældist yfir 7 á Richter. Þá hafa stjórnvöld lagt fram 15 milljónir í eins konar sjóð sem hjálparsamtök geta sótt um.

Vatn fyrir 65 milljónir
Jón Ólafsson, aðaleigandi vatnsverksmiðjunnar Icelandic Water Holdings  í Ölfusi, sendi alls 230 tonn af drykkjarvatni til Haítí. Þar af fóru 3 tonn af vatni með rústabjörgunarsveitinni strax eftir skjálftann mikla.

„Þetta var nánast innbyggt í okkar starfsemi. Við stofnuðum í upphafi sjálfseignarstofnunina Icelandic Glacial Water for Life Foundation. Þessi sjóður hefur að yfirlýstu markmiði að koma vatni til þeirra sem þurfa á að halda, einkum þegar líf liggur við,“ segir Jón í samtali við DV. Við sendum alls um 230 tonn eða sem nemur meira en einni flösku á mann. Megnið af vatninu fór með Bandaríkjaher frá birgðastöð okkar í Bandaríkjunum. Þetta er eðlilegur og sjálfsagður hlutur og var yfirlýst stefna sjóðsins frá upphafi.“

Jón áætlar að verðmæti vatnsfarmsins sé 500 þúsund dollarar eða um 65 milljónir króna.  Til samanburðar má nefna að líklega er þetta engu minni verðmæti en til að mynda kvikmyndaleikarinn heimsþekkti, John Travolta, lagði til hjálparstarfsins þegar hann sendi á dögunum eigin flugvél frá Bandaríkjunum með sjúkraliða og hjálpargögn.

Að öllu samanlögðu má því áætla að íslenska þjóðin hafi nú þegar lagt á þriðja hundrað milljónir króna til hjálparstarfsins á Haítí.

Rauði kross Íslands hjálpar 250 þúsund manns
Sólveig segir að hjálparstarfið gangi vonum framar á Haítí og í höfuðborginni Port au Prince sem verst varð úti í skjálftunum. „Þrátt fyrir fréttir af óöld, ránum og ofbeldi, hefur matvæladreifingin gengið ágætlega en hún er viðkvæmur þáttur hjálparstarfsins. Þetta liggur meðal annars í því að Rauði krossinn nýtur virðingar og velvildar. Þetta gengur því vonum framar þrátt fyrir verulega laskaða innviði samfélagsins þarna. Flugvöllurinn er illa farinn og höfnin í Port au Prince er skemmd. Það hefur leitt til þess að verulegur hluti aðstoðar og hjálpargagna eru flutt landleiðina í gegnum Dóminíska lýðveldið austanmegin á eyjunni. Þetta hefur borið þann árangur að Rauði krossinn hefur með fjölþjóðlegu átaki sínu náð að veita um 250 þúsund manns einhverja aðstoð. Það verður að kallast gott þar sem ein milljón manna er á vergangi, þar af um 600 þúsund í höfuðborginni,“ segir Sólveig.
 
400 manna miðstöð Rauða krossins í tjöldum
Sólveig segir að það hafi létt talsvert á álaginu að um 200 þúsund manns hafa leitað til ættingja og vina utan mestu hamfarasvæðanna eða til svokallaðra stuðningsfjölskyldna. „Sjúkrahúsin hafa unnið á vöktum við að sinna sjúkum og slösuðum. Sumar deildir eru hreyfanlegar sjúkradeildir og samanlagt sinna þær mörg þúsund manns á dag.“

Sólveig segir að Rauði krossinn hafi nú komið upp 400 manna höfuðstöðvum í tjaldbúðum. Þar eru skrifstofur, eldhús og  yfirleitt allt sem þarf til að geta sinnt hjálparstarfinu snurðulaust.

Tveir fulltrúar Rauða kross Íslands eru á hamfarasvæðinu þessa stundina; Hlín Baldvinsdóttir sem sér um fjármál við erfiða greiðslumiðlun bankakerfis sem hrundi í bókstaflegri merkingu.

Þá er Friðbjörn Sigurðsson læknir einnig  á Haítí en hann starfar í tjaldsjúkrahúsi þýska Rauða krossins á staðnum.
 

Til baka...