Veftré  |  Hafa samband  |  Sjálfboðaliðar  
Saga af munaðarlausum dreng á Haítí 28.01.2010
Sebastian er aðeins fimm mánaða gamall og er of ungur til að skilja að hann á ekki lengur móður á lífi.

Sebastían er einungis fimm mánaða gamall og er of ungur til að skilja að hann á ekki lengur móður. 

Jeunesse Cantave frænka hans skýrir frá því hvað gerðist þegar jarðskjálftinn á Haítí reið yfir fyrir meira en hálfum mánuði: „Þegar jörðina skók voru Sebastían, móðir hans og amma heima fyrir. Þær áttu fótum fjör að launa og reyndu að komast út úr húsinu áður en það hrundi. Amman hélt á Sebastian og þau komust út, en mamma hans hnaut og grófst undir rústum hússins.”

Sebastían mun nú alast upp hjá frænku sinni og börnunum hennar sex. „Það verður erfitt, en að sjálfsögðu munum við sjá um hann. Ef ég hefði farist í skjálftanum hefði systir mín tekið við öllum börnunum mínum,” segir Jeunesse.

Þó mikill fjöldi barna hafi misst foreldra sína í hamförunum og framtíð þeirra sé óviss, hefur Alþjóða Rauði krossinn lýst sig andvígan því að þau séu ættleidd á þessum tímapunkti.

„Reynslan hefur sýnt okkur að flest börn sem hafa orðið viðskila við fjölskyldu sína eiga foreldra eða ættingja á lífi sem bæði geta og vilja sjá fyrir þeim,” segir í yfirlýsingu Rauða kross hreyfingarinnar. „Það sem skiptir mestu máli núna er að sameina þessi börn fjölskyldum þeirra.  Fara verður varlega í allar ráðstafanir sem snerta framtíð barnanna til langframa, eins og ættleiðingar og ákvarðanir um slíkt ætti ekki að taka á meðan neyðarástand ríkir.”

Friðbjörn meðhöndlar Sebastían

Friðbjörn Sigurðsson læknir skoðar hinn fimm mánaða og munaðarlausa Sebastian. Jeunesse frænka hans fylgir honum í læknisskoðun.

Jeunesse fór með Sebastían til læknastöðvar þýska Rauða krossins þar sem Friðbjörn Sigurðsson, sendifulltrúi Rauða kross Íslands, starfar. Þrátt fyrir að drengurinn þjáist af niðurgangi og vökvaskorti er hann vel á sig kominn og heilbrigður. En þetta er fyrsta læknisskoðunin hans á ævinni.

„Eftir svona hamfarir eins og jarðskjálfta er mjög algengt að börn þjáist af niðurgangi, og þau verða að fá meðhöndlun sem fyrst,” segir Friðbjörn. „Fólk hefst við undir beru lofti af því heimili þeirra hefur hrunið til grunna. Brak úr húsum þekur göturnar og neysluvatnið er mengað. Börn veikjast mjög fljótt í slíku umhverfi og ungabörn eru sérstaklega viðkvæm fyrir þessum aðstæðum.”

Sebastían fær saltlausn til þess að vinna upp vökvatapið og viðhalda vökvanum í líkamanum svo honum batni. Niðurgangur getur hæglega valdið dauða hjá börnum ef þau fá enga meðhöndlun.

Rauði krossinn hefur veitt um 4.000 manns læknisaðstoð í tjaldsjúkrahúsum og færanlegum heilsugæslustöðvum frá því neyðaraðgerðir hófust. Sjálfboðaliðar Rauða krossins í Haítí hafa enn fremur hlúið að og gert að sárum tugþúsunda íbúa á hamfarasvæðunum.
 

Til baka...