Veftré  |  Hafa samband  |  Sjálfboðaliðar  
Hjálparsíminn - alltaf opinn 05.07.2010

Rétt er að minna á að Hjálparsími Rauða krossins er opinn yfir sumarmánuðina, eins og ávallt, allt árið um kring. Sumartíminn reynist mörgum erfiður þó að margir líti björtum augum til sumarfrís og frístunda. Sumir hafa áhyggjur af hvernig það skuli haga málum til dæmis vegna fjárskorts og atvinnuleysis. Einnig koma stundum upp erfiðleikar á skipulagi samverustunda fjölskyldna þar sem skilnaður hefur orðið, þar sem fólk er ekki sammála um hvernig skuli skipta upp tíma með börnunum og þess háttar. 



Fólki sem býr við einsemd finnur oft meira fyrir einmanaleika sínum á sumrin þegar aðrir skipuleggja ferðalög og samveru á mannamótum. Hjá Hjálparsímanum er hægt að létta á hjarta sínu og ræða við hlutlausan aðila um líðan sína. Einnig er þar hægt að fá upplýsingar um ýmsa ókeypis afþreyingju og fræðslu. Þjónustan er opinn allan sólhringinn og er gjaldfrjáls.

Til baka...
Deila þessari frétt: Senda frétt Facebook