Veftré  |  Hafa samband  |  Sjálfboðaliðar  
Vorferð sjálfboðaliða Árnesingadeildar 16.06.2010

Sjálfboðaliðar Árnesingadeildar Rauða krossins fóru í árlega vorferð á blíðviðrisdegi en í smá öskufoki.

Haldið var um Skeiðin að Skálholti þar sem Kristinn Ólafsson rektor tók á móti hópnum. Hann bauð til kirkju og sagði frá biskupasögu fyrri tíma sem allri hlustuðu á af miklum áhuga, en haft var á orði að flestir hefðu ekki haft mikinn áhuga í denn þegar átti að læra þessar sögur. En Kristinn er fróður og skemmtilegur maður og náði svo sannarlega vel til hópsins. 

Eftir kaffi, kleinur og hjónabandssælu í boði Kristins var hann kvaddur og haldið í Reykholt þar sem garngalleríið Bjarkarhóll var skoðað og einhverjir notuðu tækifærið og versluðu garn. Síðan var ekið um Laugarvatn og sem leið lá niður Grímsnes og endað í sumarbústað Mjallar í Öndverðarnesi. Þar beið súpa sem Mjöll og Inga sjálfboðaliðar höfðu eldað deginum áður og Ási maður Mjallar var búinn að gera klára þegar hópurinn mætti á svæðið. Þetta var dásamleg gúllassúpa, brauð og smjör og kaffi og konfekt á eftir.

 

Kristinn Ólafsson rektor sýnir sjálfboðaliðum Árnesingadeildar eitthvað spennandi.


 

Til baka...
Deila þessari frétt: Senda frétt Facebook